Fífuhjalli 13

200 Kópavogur

Ásett verð: 64.800.000 kr.

Fífuhjalli 13
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
81,2 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1990
Fermetraverð
798.030 kr.

Lýsing

Opið hús miðvikudaginn 18. nóvember frá kl 16:45 til 17:30 - Fífuhjalli 13, 200 Kópavogur

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Falleg 2ja herbergja íbúð með sérinngangi í tvíbýlishúsi við Fífuhjalla í suðurhlíðum Kópavogs

Fallegur og skjólgóður suðurgarður. Sérafnotaréttur við inngang íbúðarinnar. Eignin verður afhent með afgirtum sérafnotafleti.

Íbúðinni fylgir eitt bílastæði (næst tröppum) á bílaplani framan við húsið.

Arkitekt hússins er Guðfinna Thordarson.

Bókið skoðun: Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Falleg aðkoma er að húsinu. Steypt, munstrað plan með bílastæðum framan við húsið (eitt bílastæði sem fylgir þessari íbúð).

Gengið niður tröppur meðfram austurhlið hússins að sérinngangi íbúðarinnar.

Lýsing eignar:

Forstofa : Flísar á gólfi, fataskápur.

Setustofa : Rúmgóð og björt með stórum gluggum, flísar á gólfi.

Eldhús : Viðarinnrétting með góðu skápa og vinnuplássi, flísar á gólfi, borðkrókur, gluggi.

Borðstofa: Opin við eldhús, flísar á gólfi. Mögulegt væri að færa eldhúsið inn í borðstofu og nýta núverandi eldhús sem auka herbergi.

Svefnherbergi : Flísar á gólfi, fataskápur.

Baðherbergi : Flísar á veggjum og gólfi, flísalögð sturta, innrétting undir vaski.

Þvottahús/geymsla : Flísar á gólfi, tengi fyrir vélar, hvít innrétting með góðu skápaplássi, skolvaskur.

Viðhald/endurbætur

Húsið að utanverðu (múr og tréverk) var málað árið 2021

Þakjárn hússins var málað árið 2026

Falleg eign á eftirsóttum og veðursælum stað. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Einnig stutt í allar helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is