Hjarðarholt 10

300 Akranes

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Hjarðarholt 10
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
122,300000762939 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1974
Fermetraverð
571.545 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Miðborg kynnir Hjarðarholt 10, Akranesi, falleg og mikið endunýjuð efri hæð í fjórbýlishúsi auk bílskúrs. Eignin er alls 122,3 fm. og skiptist þannig að íbúðin er 95,1 fm. og bílskúrinn 27,2 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, þvottahús og þrjú svefnherbergi. Stórar suðursvalir. Bílskúrinn er rúmgóður endaskúr með gluggum, vatni, hita rafmagni og hurðaropnara.

Nánari lýsing: Sameiginlegur inngangur með íbúð á neðri hæð, snyrtilegur uppgangur. Forstofa og hol er parketlagt. Stór og björt parketlögð stofa , samliggjandi við eldhús (búið að opna á milli). Eldhúsið er með nýlegri fallegri hvítri viðarinnréttingu, nýlegum tækjum og eyju með steini á borði og hliðum. Þar er innfellt helluborð. Innaf eldhúsi er flísalagt þvottahús með innréttingu miklum fataskápum og útgangi á stórar suður svalir. Baðherbergið er nýlega standsett, flísalagt gólf og flísaþiljur á veggjum (Fibo trespo), vegghengdu salerni, walk in sturtu, innréttingu og handklæðaofni. Hjónaherbergið er parketlagt. Barnaherbergin eru bæði parketlögð.

Eignin var mikið endurnýjuð á árinu 2019, m.a. Eldhús, baðherbergi, gólfefni, innihurðir, neysluvatnslagnir o.fl. Búið er að skipta um glugga í stofu og öðru barnaherbergjanna og einnig er ný svalahurð. Nýlega var leitt vatn og hiti í bílskúrinn. Hann er rúmgóður með þrermur gluggum á hliðinni og innaf honum er geymsla með hillum. Stórt bílaplan fyrir framan bílskúr.

Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.