Austurbrú 18 - 314

600 Akureyri

Ásett verð: 132.500.000 kr.

Austurbrú 18 - 314
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
139,9 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2024
Fermetraverð
947.105 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Einstakar útsýnisíbúðir í hjarta Akureyrar. Staðsetningin býður íbúum við Austurbrú uppá einstök gæði. Íbúðirnar eru í nálægð við pollinn, miðbæinn og stóran hluta menningarstarfsemi Akureyrar.

***Bókaðu einkaskoðun í síma 464 9955 eða á byggd@byggd.is***

Íbúð 314

Fjögurra herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum og tvennum svölum á þriðju hæð í nýbyggingu ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 18.

Íbúðin er samtals 139,9 fm., þar af er geymsla 7 fm.

Íbúðin:

Komið er inn í bjarta forstofu með skáp.

Opið eldhús, með eyju, kvarts steinn á borðplötu og span helluborð. Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum. Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn í vinnuhæð, innfelldur vaskur. Allar skúffur og skápar með ljúflokum. Innfelld lýsing frá Lumex. Útgengt út á 7fm. vestur- svalir úr eldhúsi.

Stofa/borðstofa, er stór með útgengi út á svalir til austurs með glæsilegu útsýni yfir pollinn.

Hjónaherbergi er rúmgott, með baðherbergi (on-suite). Góðir skápar. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með "walk-in" sturtu, kvarts stein á innréttingu og upphengt salerni.

Tvö barnaherbergi með skápum.

Baðherbergi: Sturta með glerskili. Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu. Upphengt salerni. Skápur fyrir þvottavél og þurrkara, borðplata úr kvarts stein.

Geymsla í sameign.

Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.

Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.

Sameign er með glæsilegra móti.

Komið er inn í rúmgott anddyri. Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.

Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.

Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu.

Við Austurbrú 10-18 verða samtals 64 íbúðir og eru þær allar með verönd eða svalir. Gluggarnir nema við gólf fyrir óhefta dagsbirtu og útsýni. Flestum íbúðunum fylgir einkastæði í bílakjallara og þar eru einnig hjólageymsla og geymslur. Lyftur eru í öllum stigahúsum og gott aðgengi fyrir hjólastóla og barnavagna. Í kjallara eru geymslur íbúðanna auk 62 bílastæða í bílageymslu. Ísorka ehf. og Austurbrú 10-18 húsfélag hafa gert með sér samning með rekstur hleðslukerfis fyrir rafbíla á sameiginlegu bílastæði með hugbúnað Ísorku ehf.

Byggingarnar sem rísa Hafnarstrætis megin á reitnum munu hýsa glæsilegt hótel búið veitingastað og kokteilbar. Það verður rekið af Hilton og verður innangengt á milli húsanna.

Allar frekari upplýsingar, verðlista og tegundir íbúða má sjá með því að smella hér

Framkvæmdaraðili: Pollurinn ehf.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955