Fiskislóð 31

101 Reykjavík

Ásett verð: 82.000.000 kr.

Fiskislóð 31
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
153,2 m²
Herbergi
1
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2010
Fermetraverð
535.248 kr.

Lýsing

LIND Fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson lgfs kynnir Fiskislóð 31, 101 Reykjavík glæsilegt og bjart endahúsnæði.

Húsnæðið er skráð samtals 153,2 fm og skiptist í um 92,3 fm jarðhæð og 60,9 fm milliloft. Húsið er byggt árið 2010.

Sér inngangur og einnig innangengt frá sameign.

Nánari lýsing:

Um er að ræða virkilega glæsilega og vel staðsetta atvinnueign á Grandanum þar sem mikil lofthæð, stórir gluggar og opin rými skapa einstakt yfirbragð og fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Á jarðhæð er rúmgott, bjart og opið vinnurými með mikilli lofthæð og stórum gólfsíðum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn í rýmið.

Útfærslan er stílhrein og hrátt yfirbragð steyptra gólfa fer vel með stórum gluggaflötum og gefur eigninni skýrt New York loft yfirbragð.

Stigi liggur upp á milliloft þar sem er rúmgóð og björt skrifstofu- og vinnuaðstaða. Stórir gluggar setja sterkan svip á efri hæðina og þaðan er gott útsýni. Salerni og eldhúsaðstaða eru á jarðhæð.

Húsnæðið hentar vel undir fjölbreytta atvinnustarfsemi, svo sem skrifstofur, vinnustofu, hönnunar- eða listastarfsemi, sýningarrými eða aðra starfsemi þar sem opin og sveigjanleg rými njóta sín. Framtíðarmöguleikar felast jafnframt í því að stækka milliloftið og nýta húsnæðið sem tvær einingar,

með fyrirvara um viðeigandi samþykki og byggingarheimildir.

Hér er um að ræða eign með mikla sérstöðu á eftirsóttum stað á Grandanum, þar sem birta, lofthæð og opið skipulag skapa spennandi umgjörð fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:

Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali

Sími: 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.

-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.