Hafnarlóð 7
545 Skagaströnd
Ásett verð: 68.900.000 kr.

- Tegund
- Atvinnuhúsnæði
- Stærð
- 151,3 m²
- Herbergi
- 1
- Svefnherbergi
- 0
- Baðherbergi
- 0
- Byggingarár
- 1946
- Fermetraverð
- 455.387 kr.
Lýsing
Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu veitingastaðinn Harbour restaurant&bar á Skagaströnd.
Harbour restaurant&bar er staðsettur á Skagaströnd í gömlu iðnaðarhúsnæði á höfninni þar sem hjarta bæjarins slær. Þar má upplifa taktinn í bryggjulífinu og fylgjast með þegar bátar leggjast að og landa afla dagsins.
Húsnæðið er 151,3 fm og skiptist í veitingasal, rúmgott eldhús, starfsmannaaðstöðu og tvær snyrtingar. Veitingasalurinn er huggulega innréttaður með vönduðum húsgögnum og stórum bar. Skemmtileg lýsing er í veitingasalnum og gott hljóðkerfi. Útisvæði með 40 fm steyptri verönd. Gólfhiti er í öllu húsinu og gott loftræstikerfi.
Húsnæðið Hafnarlóð 7, sem er gamalt iðnaðarhúsnæði, var allt endurnýjað 2020-2021. Það sem er nýtt er þak, gólf, gluggar, hurðir, lagnir, frárennsli og rafmagn.
Facebooksíða: [link]
Instagram: [link]
Möguleiki á að taka eign á Höfuðborgarsvæðinu eða Akureyri upp í kaupverðið.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala