Brúnagerði - Daladýrð

607 Akureyri

Ásett verð: 248.000.000 kr.

Brúnagerði - Daladýrð
Tegund
Lóð
Stærð
153683,999969482 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
0
Fermetraverð
1.614 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Um er að ræða jörðina Brúnagerði í Fnjóskadal, jörðin er um 300 ha. að stærð.

Einstakt tækifæri til þess að taka við rekstri stækkandi ferðaþjónustufyrirtækis og/eða að flytja í fallega sveit. Um er að ræða vel uppbyggða jörð í Fnjóskadal.

Húsdýragarðurinn Daladýrð er rekinn orðið allt árið og fer gestafjöldi stöðugt vaxandi.

Íbúðarhús er sex herbergja á einni hæð samtals 158,5 fm. og er mikið upprunalegt. Útihús eru nokkur og hefur sumum verið breytt í rekstrarlegum tilgangi.

Fjárhús fyrir um 150 fjár ásamt áfastri hlöðu. Minkahúsið sem er rúmir 1.200 fm hefur verið breytt í kaffihús, eldhús, verslun, inni leiksvæði, veitingasal og aðstöðu fyrir dýr í húsdýragarðinum.

Ræktað land er rúmir 15 ha. og girðingar í góðu lagi. Búið er að gróðursetja þó nokkuð af skjólbeltum sem og dálitlum skógi.

Jörðin býður upp á mikla möguleika á besta stað á norðurlandi og er einungis í 20 mín aksturfjarlægð frá Akureyri

Nánar um reksturinn og myndir á heimasíðu daladyrd.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

berglind@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955