Norðurbraut 20

801 Selfoss

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Norðurbraut 20
Tegund
Einbýlishús
Stærð
97,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1997
Fermetraverð
668.383 kr.

Lýsing

***Norðurbraut 20, 801 Selfoss***

Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Norðurbraut 20, 801 Selfoss. Fallegt einbýli í Tjarnarbyggð, sem er búgarðabyggð milli Selfoss og Eyrarbakka. Eignin er fjögurra herbergja og skráð skv. HMS 97,1 fm á tveimur hæðum. Húsið er byggt úr timbri og stendur á eignarlóð sem skráð er 10.291 fm, eða rétt rúmur einn hektari.

Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is

Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri með fataskáp og þar innaf er baðherbergi. Þaðan er gengið inn í alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Á neðri hæðinni eru tvö svefnherbergi. Stigi liggur úr alrými upp á efri hæðina. Þar er komið upp í setustofu og þaðan er gengið inn í svefnherbergi sem er með útgengi út á svalir í suður.

Parket er á flestum gólfum nema í votrýmum, þar eru flísar.

Möguleiki er á að setja kamínu í alrýmið þar sem tengi er til staðar fyrir það.

Pallur er í suður með handriði.

Nánar um Tjarnarbyggð:

Tjarnarbyggð er skemmtilegur kostur fyrir fólk sem vill búa í sveitinni og nýta sér alla þá þjónustu sem þéttbýlið hefur upp á að bjóða. Árborg og viðkomandi veitur sjá um allan rekstur svæðisins, svo sem snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur, tæmingu rotþróa og heitt og kalt vatn. Heimilt er að byggja allt að 1.500 fm húsnæði á jörðinni, þar af íbúðarhúsnæði allt að 1.000 fm. Samtals byggingarmagn útihúsa og íbúðarhúss skal þó ekki vera meira en 1.500 fm.

Svæðið er skipt upp í klasa og eru 5–6 lóðir í hverjum klasa. Á milli klasa eru reið- og göngustígar.

Á svæðinu er heimiluð ýmis atvinnustarfsemi tengd landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar.

Eignin er í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík og í um 4 km fjarlægð frá Selfossi.

Virkilega áhugaverð eign sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:

Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is

***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***

***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***