Malarskarð 4

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 169.900.000 kr.

Malarskarð 4
Tegund
Parhús
Stærð
234,100000762939 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Byggingarár
2024
Fermetraverð
725.758 kr.

Lýsing

Ólafía Ólafsdóttir lgf., og Lögheimili eignamiðlun kynna í einkasölu: FULLBÚIÐ - GLÆSILEGT 2ja hæða parhús við Malarskarð 4 í nýju hverfi í Skarðshlíð, Hafnarfirði.

HÚSIÐ ER ALLS 234,1m 2 Á TVEIMUR HÆÐUM OG ÞAR AF ER CA. 50M 2 SÉR ÍBÚÐ Á NEÐRI HÆÐ MEÐ SÉR INNGANGI SEM SKILAST FULLKLÁRUÐ MEÐ GÓLFEFNUM.

HÚSIÐ VERÐUR AFHENT Á BYGGINGARSTIGI 4 Þ.E. FULLKLÁRAÐ HÚS OG MEÐ GRÓFJAFNAÐRI LÓÐ. EFRI OG NEÐRI HÆÐ ÁSAMT LEIGU-ÍBÚÐ Á NEÐRI HÆÐ SKILAST FULLKLÁRAÐ MEÐ INNRÉTTINGUM,TÆKJUM, FLÍSUM OG PARKETI. SÉR LEIGU - ÍBÚÐAREINING Á NEÐRI HÆÐ MEÐ SÉR INNGANGI. FULLBÚIN ÍBÚÐ AFHENDIST VIÐ KAUPSAMNING.

EFRI HÆÐ OG HLUTI NEÐRI HÆÐAR AFHENDIST FULLBÚIN VIÐ KAUPSAMNING.

FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUHÚS

STUTT Í SKÓLA OG LEIKSKÓLA

Vinsamlegast bókið skoðun í síma: 898 8242 eða á ola@logheimili.is

Ath. þrívíddarmyndir eru aðeins til viðmiðunar.

Skipting eignar samkvæmt teikningu: stærðir rýma miðast við innanmál.

Heildar stærð eignarinnar er 234,1m 2 og þar af er sér íbúð á neðri hæð ca. 50m 2 og bílskúr 26,7m 2 .

EFRI HÆÐ: samanstendur af bílskúr, forstofu , herbergi, baðherbergi, og alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt er úr borðstofu út á suðursvalir. Aðal inngangur hússins er á norður hlið.

Bílskúr: 26,7m 2 innbyggður bílskúr.

Forstofa: úr forstofu er aðgengi að bílskúr. Fatahirsla í forstofu. Flísalagt gólf.

Herbergi: herbergi með fataskáp og parketlögðu gólfi.

Baðherbergi: með sturtu, salerni og innréttingu með handlaug. Flísalagt í hólf og gólf.

Alrými: stofa, borðstofa og opið eldhús eru í opnu björtu rými. Vegleg eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp, ofni, helluborði og uppþvottavél. Granít á borðum innréttingar og eyju.

NEÐRI HÆÐ: Frá efri hæð er innangengt í hluta eða alla neðri hæðina.

Sjónvarpshol: rúmgott sjónvarpshol í miðju rými.

Baðherbergi: flísalagt baðherbergi, með salerni, frístandandi baðkeri og innréttingu með handlaug.

Þvottarými : rúmgott þvotta / geymslurými með veglegri innréttingu með vaski og gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.

Svefnherbergi: rúmgott herbergi með fataskáp og parket á gólfi.

Hjónaherbergi: með veglegum fataskápum og parket á gólfi. Frá hjónaherbergi er útgengt út á suður-baklóð.

Í HLUTA NEÐRI HÆÐAR ER SÉR ÍBÚÐAREINING MEÐ SÉR INNGANGI.

HLUTI SÉR ÍBÚÐAR Á NEÐRI HÆÐ: íbúðin er fullkláruð og verður skilað með gólfefnum.

Baðherbergi: baðherbergi með innréttingu með handlaug, salerni, sturtuklefa og rými fyrir þvottavél. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.

Svefnherbergi: eitt rúmgott svefnherbergi með fataskápum.

Alrými: Stofa: stofa með út gengi út á suður lóð. Eldhús: opið eldhús með innréttingu og eyju með áföstu matborði. Eldhúsið er hluti af opnu rými inn í stofu.

Inngangur: sér inngangur í forstofu með fatahengi. Flísalögð forstofa.

Geymsla: lítil aflokuð geymsla undir stiga.

SJÁ NÁNAR Í SKILALÝSINGU SELJANDA

Nánari upplýsingar veitir Ólafía Ólafsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8988242, tölvupóstur ola@logheimili.is.