Hjallahlíð 17
270 Mosfellsbær
Ásett verð: 142.500.000 kr.

- Tegund
- Raðhús
- Stærð
- 174,6 m²
- Herbergi
- 7
- Svefnherbergi
- 5
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1999
- Fermetraverð
- 816.151 kr.
Lýsing
** Opið hús mánudaginn 23. nóvember frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt endaraðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr Hjallahlíð 17 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 174,6 m2, þar af raðhús 149,5 m2 og bílskúr 25,1 m2. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, 5 svefnherbergi, gestasnyrtingu, baðherbergi, sjónvarpshol/stofu og bílskúr. Í bakgarði er stór timburverönd í suðurátt með heitum potti og útieldhús aðstöðu. Fyrir framan hús er steypt bílaplan með snjóbræðslu. Vinsæl staðsetning, stutt í golfvöll, Lágafellskóla, leikskólann Hulduberg og Lágafellslaug.
Skv. upplýsingum frá seljanda hefur verið farið í ýmsar endurbætur á eigninni. Meðal annars hefur var nýlega lagt parket á neðri hæð, sett upp ný eyja í eldhúsi og baðherbergi á efri hæð endurnýjað. Skipt hefur verið um allar útihurðir og glugga að hluta til. Nýlega var pallur stækkaður með yfirbyggðu útihúsi. Skipt um þakdúk á bílskúr í október 2026 og sett upp markísa yfir heitan pott.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er innangengt í svefnherbergi nr. 1 og gestasnyrtingu .
Gestasnyrting er með handlaug og vegghengdu salerni.
Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólf og fataskáp.
Stofa og borðstofa er í opnu björtu rými og með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðvesturátt með heitum potti.
Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju. Í innréttingunni er ofn, gashelluborð og vaskur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskáp.
Efri hæð:
Sjónvarpshol/stofa er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 5 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og með vegghengdu salerni, sturtu og innréttingu með handlaug. Undir súð er geymsla
Bílskúrinn er með flísum á gólfi. Úr bílskúr er gengið út á timburverönd. Er skráður 25,1 m2. Aðstaða fyrir þvottavél og þurkara er í bílskúr.
Verð kr. 142.500.000,-