Naustavör 62

200 Kópavogur

Ásett verð: 141.500.000 kr.

Naustavör 62
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
137,2 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
1.031.341 kr.

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. sími 570-4500 kynnir til sölu glæsilega 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í vandaðri 4ra hæða nýbyggingu með lyftu við Naustavör 62, sem er við sjávarsíðuna á Kársnesinu í Kópavogi.

Íbúðin sjálf er 128,8 fermetrar að stærð auk sérgeymslu í kjallara, 8,4 fermetrar. Samtals er því birt flatarmál eignarinnar 137,2 fermetrar auk sérmerkts bílastæðis í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins, merkt B-33. Svalir eru á íbúðinni.

Eignin skiptist í forstofu, hol, hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi inn af, barnaherbergi með fataskápum, gestasnyrtingu, þvottaherbergi, eldhús með eyju, stofu og borðstofu.

Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Brúnás, eldhústæki eru af vandaðri gerð frá Bræðrunum Ormsson og blöndunartæki eru af vandaðri gerð frá Tengi.

Íbúðin skilast með flísum á gólfum votrýma en að öðru leyti án gólfefna.

Traustur byggingaraðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. Sjá nánar í skilalýsingu. Hægt er að skoða nánar inn á [link]

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun er á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.

[link]

1. Frágangur innanhúss íbúða

1.1. Gólfefni Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar frá Parka.

1.2. Veggir Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af akrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.

1.3. Loft Steypt loft eru slípuð og slétt sandspörsluð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu. Á völdum stöðum og í ákveðnum íbúðum á 4. hæð er hluti lofta hljóðloft.

1.4. Gler Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum glerframleiðanda, Kambar ehf.

1.5. Hurðir Inngangshurð EICS-30, EICS-35 eða EICS-42 eftir því sem við á. Inngangshurð inn í íbúðina verður spónlögð. Innihurðir eru yfirfelldar, sléttar og sprautulakkaðar hvítar. Inngangshurðir inn í íbúðir og innihurðir eru frá Parka.

1.6. Fataskápar Fataskápur er í forstofu og í svefnherbergjum. Í sumum hjónaherbergjum eru fataherbergi ýmist með rennihurðum og/eða hefðbundnum skápahurðum. Innréttingar verða frá Brúnás og eru að innan úr ljósgráum spónaplötum en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar þar sem við á.

1.7. Eldhús Eldhúsinnrétting verður frá Brúnás og að innan úr ljósgráum spónaplötum en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar. Borðplötur verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn og innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti. Ísskápar fylgja þar sem þeir eru innbyggðir í innréttingu. Raftæki sem fylgja koma frá Bræðrunum Ormsson.

1.8. Baðherbergi Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting frá Brúnás verður að innan úr ljósgráum spónaplötum en sýnilegar hliðar og hurðir verða sprautulakkaðar. Borðplötur eru úr Virgo Quartz steini. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Handlaug ásamt hitastýrðu blöndunartæki verður í innréttingu eftir því sem við á frá Tengi. Handklæðaofn þar sem við á, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri. Innbyggð blöndunartæki verða í sturtu frá Tengi.

1.9. Þvottahús Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Ekki eru ræstivaskar í innréttingu í sameiginlegu þvottahúsi/baði. Borðplata er úr plasti. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, en gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. Veggir eru grunnaðir og málaðir með viðurkenndri votrýmis málningu.

1.10. Sérgeymsla Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru ýmist steyptir eða með timburgrind og málaðri plötuklæðningu án innréttinga. Sérgeymslur inn af bílakjallara eru án innréttinga með stálhurð eða bílskúrshurð þar sem við á og lögð epoxy efni. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.

1.11. Hitakerfi Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita- og ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.

1.12. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.

1.13. Rafmagns- og sjónvarpslagnir Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstengill verður í alrými ásamt tölvutengli. Tölvutenglar verða í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld lýsing í alrými (stofu og eldhúsi) samkvæmt teikningu er með dimmurum.

2. Frágangur sameignar

2.1. Anddyri og stigahús Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandsparslaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af plastmálningu. Aðalinngangur hvers stigahúss er flísalagður með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir en það er gert nokkru eftir að íbúðareigendur hafa flutt inn. Stigahlaup að kjallara er flíslagt. Á stigum og pöllum eru uppsett handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá ásamt lýsingu í lofti þar sem við á. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.

2.2. Hurðir Allar útihurðir fylgja frágengnar. Aðal inngangshurðir og innri anddyrishurðir eru úr áli með mótorknúinni hurðarpumpu eða mótorknúnum rennihurðarbúnaði nema á þeim hurðum sem snúa inn í garð hússins. Hurðir frá bílgeymslu gegnum brunastúkur verða með rafmag…