Aðalstræti 10

600 Akureyri

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Aðalstræti 10
Tegund
Hæð
Stærð
123,6 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1902
Fermetraverð
646.440 kr.

Lýsing

Aðalstræti 10.

LIND Fasteignasala Kynnir hið sögufræga hús Berlín á besta stað í Innbænum á Akureyri.

Bræðurnir Sigvaldi og Jóhannes Þorsteinssynir reistu húsið sem er tvílyft timburhús á steinkjallara árið 1902 undir verslunarrekstur.

Húsið er systurhús tveggja frægustu húsa í Miðbæ Akureyrar þ.e.a.s. Parísar og Hamborgarhúsana og gengur undir nafninu Berlínarhúsið.

Berlín er með fallegri eignum í þessum tiltekna stíl, þar sem það gamla hefur verið varðveitt og gert upp. Einstök eign, sjón er sögu ríkari.

Mögulegt er að kaupa allt húsið.

Heildar eignin er 380fm á tveim fastanúmerum og skiptist í tvær stórar sérhæðir auk íbúðar í hluta kjallara, möguleiki er að bæta annari svipað stórri kjallara íbúð við.

Lýsing, 2.hæð:

Forstofa er sameiginleg með neðri hæð sem notar annan inngang í dag. Innan við forstofu er stigauppgangan á efri hæðina.

Pússaðar gólffjalir og stigahandrið á stiga á þrepum er kókosteppi. Á allri íbúð eru pússaðar golffjalir að undanskildu baðherbergi.

Stofur eru tvær, mjög bjartar samliggjandi og hafa verið standsettar og mikið gert til að halda í upprunalegt útlit hússins.

Hjónaherbergi er rúmgott, með stórum fataskáp og gólfborðum á gólfi.

Innaf hjónaherbergi er minna svefnherbergi (geymsla) með glugga og kojum sem gæti nýst sem fataherbergi.

Svefnherbergi III Með stórum gluggum og gólfborðum á gólfi.

Svefnherbergi IV Með stórum gluggum og gólfborðum á gólfi.

Gangur/hol : Á veggjum er upprunaleg viðarklæðningaf holi er gengið út á suðursvalir með góðu útsýni.

Eldhús með fallegum gólffjölum sprl. innréttingu,flísum á milli efri og neðri skápa. Gashelluborð er í eldhúsi.

Baðherbergi: Er með góðri innréttingu og sturtu.

Annað:

- Gluggar og gler hefur að stærstum hluta verið endurnýjað á síðustu árum.

- Þakjárn var endurnýjað árið 2016.

- Húsið var málað að utan að stærstum hluta árið 2017.

- Húsið stendur á 330 m² eignarlóð. Sólpallur er sunnan og vestan við húsið.

- Stétt fyrir framan hús og sunnan er með hitalögn.

- Ljósleiðari er kominn í húsið.

Nánari upplýsingar:

Hrafnkell Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.

-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,