Tryggvagata 10 íb. 213

800 Selfoss

Ásett verð: 95.900.000 kr.

Tryggvagata 10 íb. 213
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
108,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Fermetraverð
884.686 kr.

Lýsing

Tryggvagata 10 íb 213, Selfossi.

Tryggvagata í hjarta Selfoss.

Lögmenn Suðurlandi fasteignasala og JÁVERK ehf. kynna 78 nýjar og glæsilegar íbúðir, örfáum skrefum frá hrífandi miðbæ Selfoss, þar sem finna má úrval listagallería, verslana og veitingastaða.

Smelltu hér til sjá heimasíðuna hjá JÁVERK til að skoða fleiri íbúðir við Tryggvagötu 10-12

Staðsetning:

Frábær staðsetning með alla helstu þjónustu í göngufæri. Stutt er í skóla, sundlaug og íþróttaaðstöðu.

Um húsið:

Tryggvagata 10 er 51. íbúða fjölbýlishús upp á fjórar hæðir ásamt kjallara. Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan með swisspearl steinklæðningu. Á svalagöngum og sumsstaðar við svalir er standandi bambusklæðning. Þök eru hallandi, risþök úr léttu burðarvirki klædd með soðnum tjörupappa. Allir gluggar og hurðir í húsinu eru úr timburálkerfi frá Idealcombi.

Íbúðin: Stærð: 108,4 fm.

Svefnherbergi: 3

Staðsetning: Önnur hæð / 2. hæð (lyfta í húsinu)

Fylgir: Einkabílastæði í bílakjallara (B016) og sér geymsla (nr. 0029). Smelltu hér til að sjá teikningu af kjallara.

Afhending: Fullbúin án gólfefna

Efri hæð: Tvennar svalir

Nánari lýsing á íbúðum er í skilalýsingu. Smelltu hér til að sjá skilalýsingu

Innra skipulag: Forstofa: Fataskápur.

Hjónaherbergi: Fataskápur. Útgengt á svalir.

Innaf hjónaherbergi er sér baðherbergi.

Herbergi: Fataskápur.

Herbergi: Fataskápur.

Eldhús: Sérsmíðar frá Selós úr slitsterku melaminefni. Dekton steinborðplötur, mjúklokun á skúffum, stálhöldur, innbyggð AEG tæki (kælir/frystir, uppþvottavél), spanhelluborð með gufugleypi (eða hefðbundin vifta), vaskur frá Contura, blöndunartæki frá Grohe.

Stofa: Útgengt á svalir.

Baðherbergi: Baðinnrétting úr slitsterku melaminefni, Silestone steinborðplötur, Grohe hreinlætistæki, sturta með 250 mm. haus, undirlímd hvít handlaug, innfelld LED lýsing í speglaskápum. Innrétting fyrir þvottavél/þurrkara.

Annað: Vönduð ljósahönnun frá Lumex

Mynddyrasími í öllum íbúðum

Snjóbræðsla á helstu gönguleiðum

Lóð frágengin með hellum, grasi, gróðurbeðum og lýsingu

Svansvottun: Loftræsi- og varmaskiptakerfi til að draga úr varmatapi og rykmyndun, góð birtuskilyrði og hljóðvist.

Framkvæmdaraðili:

JÁVERK ehf., með yfir 30 ára reynslu í mannvirkjagerð, leggur áherslu á gæði, hagkvæmni og lágmarks umhverfisáhrif. Frekari upplýsingar: [link]