Rauðarárstígur 33

105 Reykjavík

Ásett verð: 73.900.000 kr.

Rauðarárstígur 33
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
82,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1991
Fermetraverð
900.122 kr.

Lýsing

Björt og vel skipulögð íbúð á efstu hæð með stórum svölum og stæði í bílageymslu

Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 82,1 m², 2–3ja herbergja íbúð á fjórðu og efstu hæð í lyftuhúsi við Rauðarárstíg 33 í Reykjavík. Íbúðin er björt og vel skipulögð með opnu alrými, mikilli lofthæð og stórum svölum út frá stofu. Eigninni fylgir merkt stæði í lokaðri bílageymslu. Frábær staðsetning í miðborg Reykjavíkur, en jafnframt í rólegu umhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri.

- Eignin getur verið laus við kaupsamning

- Efsta hæð í lyftuhúsi

- Bjart alrými með mikilli lofthæð

- Stórar svalir út frá stofu

- Merkt stæði í lokaðri bílageymslu

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Nánari lýsing eignar:

Íbúðin er skráð 82,1 m² samkvæmt HMS, þar af er neðri hæð 58,1 m², rishæð 21,3 m² og sérgeymsla í sameign 2,7 m². Gólfflötur rishæðarinnar er stærri en skráðir fermetrar gefa til kynna þar sem hluti rýmisins er undir súð.

Forstofa: Flísalögð forstofa með góðu skápa- og geymslurými undir stiga.

Þvottahús: Sérþvottahús innan íbúðar með hvítri innréttingu og tengi fyrir þvottavél, möguleiki er að hafa auka ísskáp/frysti í þvottahúsinu.

Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með mikilli lofthæð, innfelldri lýsingu og parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á stórar svalir.

Eldhús: Opið eldhús með hvítri innréttingu, eyju og innbyggðum tækjum.

Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum, með sturtu, upphengdu salerni, hvítri innréttingu og góðu skápaplássi.

Rishæð: Stigi liggur upp á rúmgóða rishæð með parketi á gólfi og tveimur opnanlegum þakgluggum. Rýmið er að hluta til undir súð og er nýtt sem svefnherbergi.

Geymsla: Sérgeymsla, 2,7 m², er í sameign.

Bílastæði: Íbúðinni fylgir merkt stæði í lokaðri bílageymslu . Auk þess á húsið nokkur merkt bílastæði fyrir framan húsið.

Upphaflegu skipulagi íbúðarinnar hefur verið breytt með því að opna herbergi sem áður var við hlið stofu og stækka þannig alrýmið. Möguleiki er á að breyta skipulaginu aftur og útbúa þriðja herbergið.

Húsið og sameign:

Húsið er 21 íbúða fjölbýlishús með lyftu auk tveggja atvinnurýma á jarðhæð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu og á baklóð er gróinn garður með leiktækjum.

Helstu framkvæmdir á sameign:

Húsið múrviðgert og málað að utan 2025

Skipt um járn á þaki árið 2022

Þakgluggar endurnýjaðir 2022

Húsfélagsgjöld eru 33.396 kr. á mánuði og innifela meðal annars hita, húseigendatryggingu, rafmagn í sameign, rekstur lyftu, ræstingu sameignar og framlag í framkvæmdasjóð. Húsfélagið er í umsjón Eignaumsjónar.

Eignin er á frábærum stað í miðborg Reykjavíkur, en jafnframt í rólegu umhverfi. Hlemmur er við enda götunnar og Sundhöll Reykjavíkur í næsta nágrenni. Stutt er í Klambratún, verslanir, veitingastaði og fjölbreytta þjónustu. Hér er allt það helsta í göngufæri.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800 fyrir hvert skjal. Lántökugjald samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda og umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.