Heiðarstekkur 8P

800 Selfoss

Ásett verð: 61.900.000 kr.

Heiðarstekkur 8P
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
94,9 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2022
Fermetraverð
652.266 kr.

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna;

Heiðarstekkur 8P - laus til afhendingar við kaupsamning

Mjög vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð í fallegu fjölbýlishúsi í nýju hverfi á Selfossi rétt við Stekkjarskóla.

Húsið er byggt úr forsteyptum einingum, útveggir eru steinaðir með dökkri loftorkuperlu, þak er flatt, klætt með pvc dúk og farg er þar ofaná.

Íbúðin er 94,9m2 að stærð, og skiptist í andyri, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús auk sérgeymslu sem er í sameignarhluta hússins. Hjóla og vagnageymsla er í sameign.

Nánari lýsing:

Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er fataskápur.

Þvottahús er flísalagt.

Baðherbergið er flísalagt bæði gólf og hluti veggja, þar er innrétting og gólfsturta.

Herbergin eru öll með harðparketi og eru skápar í þeim öllum.

Eldhúsið er opið inní stofuna, þar er snyrtileg innrétting og parket á gólfi.

Stofan er parketlögð og í henni er útgengt á góðar svalir.

Lóðin er gróin og bílaplan er malbikað.

Staðsetning er mjög góð en íbúðin er í fjölskylduvænu hverfi við Stekkjarskóla.

Nánari upplýsingar

Skrifstofa Árborga 482-4800 arborgir@arborgir.is

Þorsteinn Magnússon lgf 894 2045 steini@arborgir.is