Vefarastræti 19

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 87.000.000 kr.

Vefarastræti 19
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
110,199999809265 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2017
Fermetraverð
789.474 kr.

Lýsing

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.

Vefarastræti 19-lyftuhúsnæði byggt árið 2017, 4ra herbergja 110,2 fm endaíbúð á 4. hæð ( efstu ) og stæði í bílakjallara. Frábær staðsetning, Helgafellskóli í göngufæri. Stórar 15 fm suðursvalir með fallegu útsýni.

Íbúðin er í dag með 2 svefnherbergjum ( 3 svefnherbergið er teiknað í sjónvarpsstofu ) fataskápar í báðum herbergjum.

Forstofa með flísum, fataskápur. Baðherbergið er flísalagt, stórt og rúmgott, þar er sturta og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Alrými samanstendur af rúmgóðu eldhúsi með dökkri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél ( fylgir með ) bakaraofn í vinnuhæð og innbyggður örbylgjuofn. Rúmgóð stofa og þaðan gengið út á stórar suðursvalir, sjónvarpsherbergi inn af stofu ( teiknað sem 3 svefnherbergið )

Í kjallara er sameiginleg hjóla og vagnageymsla, sérgeymsla ( skráð 7,7 fm inni í heildarfermetrum íbúðar ) og gengið í bílastæðakjallara ( hægt að setja upp hleðslustöð )

Í heild rúmgóð og vel skipulögð íbúð með fallegu útsýni. Bílastæði á baklóð og fyrir framan hús. Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is