Snægil 30 - 201

603 Akureyri

Ásett verð: 49.900.000 kr.

Snægil 30 - 201
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
70 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1999
Fermetraverð
712.857 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Snægil 30 - 201

**Laus við kaupsamning**

**Frábær fyrstu kaup**

Um er að ræða bjarta og rúmgóða tveggja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli með sér inngangi. Eignin er staðsett innst í botnlangagötu í barnvænu hverfi. Gluggar til þriggja átta úr íbúð og svalir til suðurs.

Eignin er skráð samtals 70 fm. að stærð og skiptist í forstofu, þvottahús, geymslu, baðherbergi, eldhús, stofu og svefnherbergi.

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.

Þvottahús er innaf forstofu með dúk á gólfi, pekkplata með vask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla er innaf þvottahúsi með dúk á gólfi og opnanlegum glugga. Rennihurð er milli geymslu og þvottahús.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að hluta, góð innrétting við vask, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi á baði. Loftljós á baðherbergi sem eru við skoðun fylgja ekki en við afhendingu eignar verða ljósakúplar.

Eldhús og stofa er að hluta opið, dúkur á gólfi og útgengi út á svalir til suðurs. Flísar á milli efri og neðri skápa, stæði fyrir 45, cm uppþvottavél í innréttingu. Uppþvottavél fylgir ekki.

Svefnerbergi með dúk á gólfi og góðum fataskáp.

Á stigapalli efri hæðar framan við inngang er lúga með fellistiga upp á háaloft sem er sameiginlegt með fjórum íbúðum. Möguleigi að setja plötur/gólf til að nýta sem geymslurými. Einnig er sameiginlegur skúr/inntaksrými framan við húsið

Annað:

-Sér inngangur

-Ljósleiðari

-Sameiginlegt háaloft með fellistiga

-Húsið málað 2025

-Afar barnvænt hverfi, stutt í leik og grunnskóla

-Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

greta@byggd.is

olafur@byggd.is

bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955