Skarðshlíð 15 303

603 Akureyri

Ásett verð: 61.500.000 kr.

Skarðshlíð 15 303
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
115,4 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1967
Fermetraverð
532.929 kr.

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Skarðshlíð 15, íbúð 303 - Mikið endurnýjuð, rúmgóð og björt 5 herbergja 115,4 fm endaíbúð í góðu fjölbýli í Glerárhverfi.

Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, fjögur svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Einnig fylgir eigninni sér-geymsla í kjallara.

Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp og opnu fatahengi.

Stofa og borðstofa koma saman í rúmgóðu og björtu rými með harðparketi á gólfum. Úr stofu er gengið út á flísalagðar svalir með útsýni til suðurs.

Eldhús er mjög rúmgott með harðparket á gólfi. Þar er eikar-innrétting með bakaraofni í vinnuhæð og plássi fyrir uppþvottavél. Flísar eru á milli skápa og dökk borðplata.

Þvottahús er inn af eldhúsi. Þar eru flísar á gólfi, hvít innrétting með góðu skápaplássi og plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísar eru á milli skápa og dökk borðplata með skolvaski.

Svefnherbergin eru fjögur. Eitt þeirra er innaf stofu og var áður opið sjónvarpshol. Þar er harðparket á gólfi. Hin þrjú herbergin eru á svefnherbergisgangi og eru öll með harðparket á gólfum og góðu skápaplássi. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir til vesturs.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er nýleg, hvít innrétting, upphengt salerni, sturtuklefi, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.

Geymsla í sameign fylgir íbúð.

- Gler, gluggar og svalahurðir endurnýjað 2023

- Blokk var máluð og múrviðgerð 2022

- Rafmagn var endurnýjað 2023 að undanskildri rafmagnstöflu

- Dyrasími var endurnýjaður 2023

- Skipt hefur verið um innihurðir

- Ofnar voru endurnýjaðir í kringum 2014

- Góð staðsetning í göngufæri við miðbæ, leik- og grunnskóla

- Fallegt útsýni er úr eigninni

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.