Eikarás 1

210 Garðabær

Ásett verð: 319.000.000 kr.

Eikarás 1
Tegund
Einbýlishús
Stærð
374 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
3
Byggingarár
2003
Fermetraverð
852.941 kr.

Lýsing

Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt kynna glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús á tveimur hæðum þar sem hvor hæð myndar sjálfstæða einingu. Húsið var endurnýjað að miklu leyti árið 2020 og býður upp á rúmgott einbýli á efri hæð og fullbúna aukaíbúð á neðri hæð sem getur skilað um 420.000 kr. í leigutekjur á mánuði. Tilvalið fyrir stóra fjölskyldu, fjölskyldu með eldri börn, eða kaupendur sem vilja útleigueiningu samhliða góðu einbýli.

Helstu staðreyndir: Eikarás 1 er einbýlishús á tveimur hæðum, tvær sjálfstæðar einingar.

Heildarstærð hússins er 374m2.

Efri hæð er fimm herbergja einbýli með 40m2 tvöföldum bílskúr, samtals 240m2.

Neðri hæð er þriggja herbergja íbúð með sérinngangi, samtals 134m2.

Byggingarár eignar 2003 en mikið endurnýjað árið 2020.

Efri hæð – aðalhæð hússins

Efri hæðin er sérlega björt og vel skipulögð. Þar er rúmgott alrými með eldhúsi , borðstofu og stofu , auk setustofu og sólskála . Útgengt er á verönd frá alrýminu. Eldhúsið er stílhreint með dökkum innréttingum, eyju, innbyggðum tækjum og góðu skápaplássi. Á hæðinni eru fjögur rúmgóð svefnherbergi , þar á meðal hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtu, sér þvottahús og rúmgóð forstofa . Tvöfaldur bílskúr , 40 m².

Neðri hæð – sjálfstæð aukaíbúð

Neðri hæðin er fullbúin , sjálfstæð íbúð með sérinngangi – tilvalin til útleigu eða fyrir stóra fjölskyldu sem þarfnast sveigjanleika. Þar er forstofa , tvö svefnherbergi , rúmgóð stofa , setustofa , glæsilegt eldhús , baðherbergi og rúmgott þvottahús . Eldhúsið er einstaklega vandað með, ljósri borðplötu og innbyggðum Siemens - tækjum , og stofu með útgengi á hellulagða suðurverönd. Hæðin var endurnýjuð að miklu leyti árið 2020.

Mjög hentug eign fyrir stóra fjölskyldu eða fjölskyldu sem þarf sveigjanlegt skipulag. Ath: eignin er skráð 346m2 skv. HMS en inn í þá tölu vantar stækkun hússins sem var gerð samhliða aukaíbúð neðri hæðar.

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is.