HLÍÐARGATA 14 & 14A

740 Neskaupstaður

Ásett verð: 75.000.000 kr.

HLÍÐARGATA 14 & 14A
Tegund
Parhús
Stærð
266,199996948242 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
1925
Fermetraverð
281.743 kr.

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu VINAMINNI - HLÍÐARGATA 14 og 14A, 740 Neskaupstaður. Parhús á tveimur hæðum auk kjallara, tvö fastanúmer.

Ýmsir möguleikar: Eign fyrir stóra fjölskyldu, sameining beggja eigna eða aukaíbúð með leigutekjum. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er steypt byggt árið 1925, tvær hæðir og kjallari.

Húsið skiptist í Hlíðargata nr. 14, 139.0 m² og Hlíðargata nr. 14 A, 127.2 m², samtals 266.2 m² samkvæmt skráningu HMS.

HLÍÐARGATA 14 (íbúð í austur), skipulag;

Neðri hæð: Forstofa, gangur, hol/stigahús, stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymsla.

Efri hæð: Fjögur herbergi, hol/stigahús og snyrting.

HLÍÐARGATA 14A (íbúð í vestur), skipulag;

Neðri hæð: Forstofa, baðherbergi/þvottur, stigi.

Efri hæð: Stofa, eldhús og borðstofa og herbergi.

Kjallari : Geymslur.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing: HLÍÐARGATA 14, gengið er frá bílastæði framan við húsið upp stiga að inngangi íbúðar.

Neðri hæð:

Forstofa, flísar á gólfi, skóskápur (fylgir ekki) og fatahengi. Innangengt er frá forstofu í geymslu.

Geymsla, flísar á gólfi og hillur, gluggi. Gangur er innan við forstofu, við enda gangs er hol/stigahús, þaðan er gengið upp teppalagðan stiga á efri hæð.

Stofa og borðstofa, opið er á milli stofa, harðparket á gólfi, vegghengdur skápur í stofu fylgir, eldhús er opið við borðstofu.

Eldhús , L-laga innrétting, harðparket á gólfi, helluborð, Samsung ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt) borðkrókur.

Baðherbergi , flísar á gólfi, vaskinnrétting, upphengt salerni, baðkar og sturta, gluggi, Fíbóplötur á veggjum í sturtu og við baðkar.

Þvottahús, flísalagt í hólf og gólf, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, vinnuborð, handklæðaofn og gluggi.

Efri hæð:

Hol/stigahús , harðparket á gólfi, þaðan er innangengt í önnur rými efri hæðar.

Herbergi I, hjónaherbergi, harðparket á gólfi.

Herbergi II, harðparket á gólfi.

Herbergi III , harðparket á gólfi.

Herbergi IV, harðparket á gólfi

Snyrting, flísar á gólfi, handlaug og upphengt salerni.

Íbúðin á geymslu í kjallara hússins, steypt gólf, skiptist í geymslur.

Nánari lýsing: HLÍÐARGATA 14A, gengið er frá bílastæði framan við húsið að inngangi íbúðar.

Neðri hæð:

Forstofa, flísar á gólfi, frá forstofu er innangengt um stiga upp á efri hæð og á baðherbergi.

Baðherbergi/þvottur , flísar á gólfi, vaskinnrétting, upphengt salerni, sturta gluggi og handklæðaofn.

Þvottaaðstaða er á baðherbergi, tengi fyrir eina vél, skápur.

Efri hæð:

Eldhús og borðstofa, opið er á milli, harðparket á gólfi,

Eldhús , innrétting, helluborð og ofn, vifta, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu (getur mögulega fylgt).

Stofa, harðparket á gólfi.

Herbergi I, hjónaherbergi, harðparket á gólfi.

Íbúðin á geymslu í kjallara hússins, steypt gólf, skiptist í geymslur.

Híðargata 14 og 14A er parhús , tvær hæðir auk kjallara. Húsið er steypt, hæðir eru klæddar að utan með bárujárni, kjallari er málaður. Þak er klætt bárujárni.

Sér inngangur er í hvora íbúð, tveir inngangar eru í kjallara. Lóðir eru frágengnar.

Á lóð við nr. 14 er malbikað bílastæði framan við hús, pláss fyrir tvær bifreiðar, steyptar tröppur liggja þaðan að inngangi íbúðar.

Við inngang er timburverönd með skjólveggjum, heitur pottur er á verönd.

Á lóð við nr. 14A er malbikað bílastæði aftan við hús, pláss fyrir tvær bifreiðar, timburverönd er við inngang íbúðar.

Við hlið hússins (íbúðar) er timburverönd með skjólveggjum. Gróðurhús stendur í útjaðri lóðar, gróðurhúsið stendur að mestu leyti fyrir utan útlínur lóðarmarka sjá nánar Landeignaskrá.

Ekki er starfandi húsfélag í eigninni.

Lóð nr. 14 er 378.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 30. júlí 1949. Skjal nr. 428-N-B119/1949

Lóð nr. 14A 252.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 30. júlí 1949. Skjal nr. 428-N-E120/1949.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 216-9187. Hlíðargata 14, Fjarðabyggð.

Stærð: Parhús 139.0 m².

Brunabótamat: 60.600.000kr.

Fasteignamat: 34.900.000 kr.

Byggingarár: 1925.

Byggingarefni: Steypa.

Eignarhald: 01.2- Séreign.

Rými 01.0001 Geymsla 26 Brúttó m². 01.0101 Íbúð á hæð 55.5 Brúttó m²​​​​​​. 01.0201 Íbúðarherbergi í kjall 55.5 Brúttó m²​​​​​​.

Landeignanúmer 155493, Íbúðarhúsalóð 378,0 m².

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 216-9188. Hlíðargata 14A, Fjarðabyggð.

Stærð: Parhús 127.2 m².

Brunabótamat: 60.450.000kr.

Fasteignamat: 32.650.000 kr.

Byggingarár: 1925.

Byggingarefni: Steypa.

Eignarhald: 01.2- Séreign.

Rými 01.0001 Geymsla 18 Brúttó m². 01.0101 Íbúð á hæð 54 Brúttó m²​​​​​​. 01.0201 Íbúðarherbergi í risi 55.2 Brúttó m²​​​​​​.

Landeignanúmer 155494, Íbúðarhúsalóð 252,0 m².