Hafnarbraut 14A - íbúð 204

200 Kópavogur

Ásett verð: 87.900.000 kr.

Hafnarbraut 14A - íbúð 204
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
100,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2021
Fermetraverð
872.890 kr.

Lýsing

Viltu fasteignir kynna Hafnarbraut 14 sem er 100,7m2 vönduð 3ja herbergja íbúð ásamt stæði í bílageymslu.

Seljendur skoða uppítöku (makaskipti) á ódýrari eign á höfuðborgarsvæðinu. Jafnvel eign sem er þegar í útleigu.

Hægt að sýna með stuttum fyrirvara flesta daga.

Eignin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit , húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Um er að ræða fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í vönduðu, nýlegu lyftuhúsi við sjávarsíðuna á Kársnesinu .

Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og svalir. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og einnig er talsverður fjöldi af sameiginlegum bílastæðum utanhúss . Eignin stendur við vinsælan göngu- og hjólastíg sem liggur meðfram strönd Kársness. Þá mun ný borgarlínubrú rísa í nágreninu sem mun tengja Kársnesið við miðborg Reykjavíkur.

Eignin er skráð 100.7m2

Innréttingar eru sérsmíðaðar, framleiddar og uppsettar af Voke – III

Hreinlætistæki frá Grohe

Flísar á baðherbergi frá Sunstone frá Parki interiors

Innihurðir frá Parka

Hús klætt að utan með vandaðri álklæðningu sem veðurkápu

Fallegt planka harðparket á öllu nema baðherbergi, þvottahúsi og geymslu sem eru flísalögð.

Nánari lýsing:

Forstofa: Frá sameign er gengið í forstofu/gang og þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Góður innbyggður fataskápur er í forstofu

Stofa/borðstofa: Samliggjandi og mjög rúmgóð í opnu og björtu rými. Stórir gólfsíðir gluggar. Frá stofu er gengið út á svalir.

Svalir: Út frá stofu eru um 5m2 svalir.

Eldhús: Vönduð sérsmíðum innrétting frá Voke - III. Mikið skápapláss og stór eyja með spanhelluborði. Borðplötur úr akrílsteini frá Durastone með ísteyptum vaski. Ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskapur.

Baðherbergi: Flísalagt að mestu með fallegum flísum. Góð "labb-inn" sturta, innbyggt upphengt klósett og handklæðaofn. Vönduð og rúmgóð innrétting með speglaskáp og fallegri lýsingu. Borðlata úr akrílsteini með ísteyptum vaski.

Hjónaherbergi : Rúmgott og bjart með stórum innbyggðum fataskáp.

Herbergi 2: Gott og bjart herbergi með innbyggðum fataskáp.

Þvottahús: Innan íbúðar er sér þvottahús með góðri innréttingu með plássi fyrri þvottavél og þurrkara.

Geymsla: Innaf þvottahúsinu er góð geymsla.

Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir. Hleðslustöð fyrir rafbíl er við stæðið (stöðin er leigð í gegnum húsfélagið)

Í sameign er einnig sameiginleg hjólageymsla.

Eignin er á frábærum stað við sjávarsíðuna vestast á Kársnesi þar sem stutt er í þjónustu, skóla/leikskóla og útvist!

Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is

Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk

Allt innifalið.

Kynntu þér málið á Viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.