Staðarborg 22

190 Vogar

Ásett verð: 85.300.000 kr.

Staðarborg 22
Tegund
Raðhús
Stærð
129,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2023
Fermetraverð
660.217 kr.

Lýsing

eignasala.is kynnir eignina Staðarborg 22, 190 Vogar, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 252-7920 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

STAÐARBORG 22C – F2527920 – 190 VOGAR

GLÆSILEGT OG VEL SKIPULAGT 129,2 M² FIMM HERBERGJA MIÐJU RAÐHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM MEÐ FJÓRUM HERBERGJUM SEM NÝTAST SEM SVEFNHERBERGI, TVEIMUR SNYRTIRÝMUM, SÉRÞVOTTAHÚSI OG FALLEGU SJÁVARÚTSÝNI AF SVÖLUM Í VOGUM.

Um er að ræða bjarta og rúmgóða fjölskyldueign, byggða árið 2023, með sérinngangi og góðu skipulagi. Á neðri hæð eru forstofa, herbergi sem nýtist sem skrifstofa eða svefnherbergi, gestasnyrting og opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sérþvottahús. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir með sjávarútsýni.

NÁNARI LÝSING

Forstofa: Rúmgóð með flísum á gólfi.

Eldhús: Falleg ljós innrétting með eldhúseyju, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Helluborð og bakarofn eru í eyjunni.

Stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými með parketi á gólfi og útgengi á sérafnotaflöt að baki húsinu.

Herbergi á neðri hæð: Parketlagt herbergi sem hentar sem skrifstofa, gestaherbergi eða svefnherbergi.

Gestasnyrting: Flísalögð með upphengdu salerni, innréttingu við handlaug og handklæðaofni.

Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi, fataskáp og útgengi á svalir með fallegu sjávarútsýni.

Svefnherbergi II og III: Tvö góð herbergi með parketi á gólfum.

Baðherbergi: Flísalagt með sturtu, upphengdu salerni, innréttingu við handlaug og handklæðaofni.

Þvottahús: Sérþvottahús á efri hæð.

Svalir: Um 5,5 m² svalir með útgengi úr hjónaherbergi og sjávarútsýni.

Lóð og bílastæði: Afmarkaður sérafnotaflötur á baklóð, malbikuð aðkoma og hleðslustöð fyrir rafbíl.

Geymsla: Sérstakt 4,5 m² inntaks- og geymslurými er hluti af skráðu flatarmáli eignarinnar.

HELSTU KOSTIR

129,2 m² – fimm herbergja miðjuraðhús. Þrjú svefnherbergi og skrifstofa/fjórða herbergi. Tvær hæðir – byggt árið 2023. Tvö snyrtirými. Svalir með sjávarútsýni. Bjart alrými með eldhúseyju. Sérþvottahús

Sérinngangur. Sérafnotaflötur á baklóð. Hleðslustöð fyrir rafbíl. Sérstakt inntaks- og geymslurými. Eignin getur verið laus við kaupsamning

Fallegt og vel skipulagt fjölskylduhús þar sem rúmgóð herbergi, bjart alrými, sérþvottahús og sjávarútsýni skapa þægilegt og aðlaðandi heimili.

BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ FINNUM TÍMA SEM HENTAR ÞÉR!

Júlli – 899 0555 | Jói – 864 9677, Bjarni Fannar – 773 0397 | Reynir – 777 0915, Skúli – 898 7209

EIGNASALA.IS – Hafnargata 90a, Keflavík

tölvupóstur julli@eignasala.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.