Langafit 8

210 Garðabær

Ásett verð: 137.900.000 kr.

Langafit 8
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
194,599999237061 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1972
Fermetraverð
708.633 kr.

Lýsing

Eign á góðum stað í Garðabæ, stutt í ýmsa þjónustu og íþróttastarf í Ásgarði.

Viltu fá söluyfirlit sent strax

komdu og skoðaðu eignina hér

Sigrún Matthea 695-3502 netf: sms@remax.is löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir: Fallegt fjölskyldu hús Langafit 8 í Garðabæ, þrjú - fjögur svefnherbergi, rúmgóð stofa, sólskáli, bílskúr, á timburverönd er ma. gróðurhús og stór gróinn garður. Hitalögn í hellulögðu plani fyrir framan hús.

Húsið er byggt árið 1972 og stendur á 720m2 eignarlóð, og er byggt úr holsteini eins og mörg hús í þessu gróna hverfi, örstutt að sækj í grunnskóla, verslanir, sundlaug og íþróttastarf í Ásgarði.

Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er stærð hús / íbúð 163,3m2 og stærð bílskúr 31,3 m2 samtals 194,3 m2

Eign sem vert er að skoða á góðum stað í Garðabæ.

Forstofa: Flísar á gólfi.

Hol: Flísar á gólfi.

Eldhús: Góð innrétting, gott vinnu og skápapláss,innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, borðkrókur flísar á gólfi.

Stofa / Sólskáli: Bjart og opið rými, harðparket á gólfi stofu, flísar og hiti í gólfi sólskála, gengið úr sólskála út á verönd og gróinn garð.

Svefnherbergi I: Fataskápur, harðparket á gólfi, þetta herbergi er stúkað af úr stofu með léttum vegg, auðvelt að stækka stofu um þetta pláss.

Úr holi er gengið upp nokkrar tröppur upp á flísalagðan pall og þar er:

Svefnherbergi II: Fataskápar, harðparket á gólfi.

Svefnherbergi III: Innbyggður lítill fataskápur, harðparket á gólfi.

Baðherbergi: Innrétting gott geymslupláss, handlaug, vegghengt salerni, sturta, flísar á veggjum og gólfi.

Úr holi er gengið niður nokkrar tröppur í:

Þvottaherbergi / lagnarými: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.

Herbergi IV / Geymsla: Flísar gólfi, þetta herbergi hefur verið nýtt sem geymsla, sturta er í þessu herbergi.

Herbergi V: Rúmgott herbergi hefur verið nýtt sem svefnherbergi harðparket á gólfi.

Bílskúr: Rúmgóður bílskúr, gluggar nýlegir en bílskúr þarfnast eh. viðhalds.

Timburverönd: Gengið úr sólskála og úr garði á verönd er gróðurhús.

Garður / lóð: Gróinn stór garður, geymslukofi fylgir með á lóð.

Þetta er eign sem vert er að skoða sem stendur á 720 m2 eignarlóð á mjög góðum stað í Garðabæ.

Upplýsingar um eigina veitir Sigrún Matthea lgf. í síma 695-3502 eða á netfang sms@remax.is

Ert þú í söluhugleiðingum / fasteignahugleiðingum ? og ekki búinn að fá verðmat á eignina þína verðmat er án kostnaðar og skuldbindingar fyrir þig, velkomið að vera í sambandi við mig netf. sms@remax.is eða sími 695-3502

Viltu panta verðmat á þína eign smelltu hér

Í lögum um fasteignakaup lög nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.