Víðimýri 16

740 Neskaupstaður

Ásett verð: 44.900.000 kr.

Víðimýri 16
Stærð
134,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
1966
Fermetraverð
334.825 kr.

Lýsing

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:

Víðimýri 16 Neskaupstað.

Rúmgóð og falleg 4 herb., 134,1 fm íbúð á 2. hæð í 4ra íbúða fjölbýlishúsi.

Íbúð er skráð 117,8 fm og geymsla 16,3,3 fm, alls 134,1 fm.

Lýsing eignar :

Flísalagt anddyri er framan við íbúðina.

Komið er inn í bjart og rúmgott eldhús, með stórri innréttingu.

Ein hlið eldhússins er alveg opin við hol sem tengir saman eldhús og stofu í eitt mjög rúmgott og bjart rými.

Stofan er með dyrum út á suðursvalir. Nýleg svalahurð.

Við svefnherbergjagang eru 3 svefnhergergi, snyrting og gott baðherbergi með stórri sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í stórri og góðri innréttingu með mjög góðum ræstiskáp.

Bæði baðherbergið og snyrtingin hafa nýlega verið endurnýjuð.

Stutt er síðan skipt var um ofna í íbúðinni.

Innihurði eru nýlegar ásamt fataskápum.

Góð sérgeymsla í kjallara

Húsið er klætt með álklæðningu.

Nýlegir viðhaldsléttir gluggar eru í íbúðinni.