Njálsgata 19

101 Reykjavík

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Njálsgata 19
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
73,5 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
2005
Fermetraverð
951.020 kr.

Lýsing

Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir, löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu, kynna í einkasölu:

Björt og falleg 2ja herbergja íbúð með útsýnissvölum sem telur 73,5 fm, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi með lyftu. Íbúðin er vel skipulögð, með rúmgóðum vistarverum, góðri náttúrulegri birtu og útsýnissvölum.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á gj@remax.is.

Við inngang hússins tekur á móti íbúum bjart og fallegt sameiginlegt miðrými sem gefur húsinu skemmtilegan svip.

Íbúðin er laus til afhendingar 1. Mars 2027 en möguleiki er á fyrri afhendingu ef kaupandi tekur yfir gildandi leigusamning.

Nánari lýsing eignar

Anddyri: Lítið og snyrtilegt anddyri með fataskáp. Náttúrusteinn/flísar á gólfi.

Stofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Stofan liggur þvert í gegnum íbúðina og er með glugga til suðurs, út að Njálsgötu.

Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og frysti. Flísar á gólfi og eldhúsið er að hluta opið inn í stofu.

Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi, fataskáp og glugga sem snýr út að bakgarði hússins.

Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari og upphengdu salerni.

Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er á hverri hæð, ætlað íbúðum viðkomandi hæðar. Fjórar íbúðir eru á hæðinni.

Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, 6,8 fm að stærð. Auk þess er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í húsinu.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Möguleiki á fyrri afhendingu samkvæmt samkomulagi.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.