Hafnargata 110

415 Bolungarvík

Ásett verð: 46.900.000 kr.

Hafnargata 110
Tegund
Einbýlishús
Stærð
190,5 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1943
Fermetraverð
246.194 kr.

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] kynnir til sölu - Hafnargata 110 Bolungarvík - Töluvert endunýjað og skemmtilega staðsett steinsteypt 150 m² einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 40 m² bílskúr. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, tvær stofur, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymsla, fallegur garður. Ath. að hluti innbús getur fylgt með eigninni.

Nánari lýsing:

Efri hæð: Forstofa með flísum á gólfim gott fatahengi og fataskápur.

Gangur /hol með parketi.

Tvö ágæt svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi nýlega endurnýjað (2021), hiti í gólfi, með flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi og innrétting.

Eldhús með hvítri innréttingu, eldavél, tengi fyrir uppþvottavél, búr með hillum inn af eldhúsi.

Rúmgóð stofa , parket á gólfi.

Neðri hæð:

Hringstigi úr stofu niður á neðri hæð,sem er með minni lofthæð, þar er góð sjónvarps/setustofa með parketi.

Svefnherbergi með parketi á gólfi.

Stórt þvottahús með skápum og ágæt geymsla , möguleiki er á að stækka neðri hæðina.

Bílskúr er 40 m² að stærð, byggður úr holsteini, vatn, bílskúrshurð með opnara, inngönguhurð, rafmagn og kynding í bílskúr.

Köld geymsla afstúkuð í enda bílskúrs.

Hellulögð stétt og tvöfalt bílastæði fyrir framan bílskúr, fallegur garður við sjávarborðið, geymsluskúr og verönd með skjólveggjum.

Framkvæmdir að sögn seljenda:

Þak endurnýjað 2022. Baðherbergi endurnýjað 2021. Skipt um stóran hluta glers 2020.