Bjarkarhraun 8

311 Borgarnes

Ásett verð: 19.000.000 kr.

Bjarkarhraun 8
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
55,8 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2003
Fermetraverð
340.502 kr.

Lýsing

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Bjarkarhraun 8, Bifröst, 311 Borgarbyggð.

Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á efri hæð í fjölbýlishúsi, byggt úr steinsteyptum einingum 55.8 fm að stærð skv. skráningu FMR. byggt árið 2003. Hitaveita er á svæðinu.

Nánari lýsing:

Gengið er í forstofu . Fataskápur við forstofu. Þar innaf er stofa og eldhús sem mynda alrými. Eldhúsinnrétting og tæki eru af eldri gerð. Baðherbergi er með sturtuklefa og salerni, dúkur er á gólfi og vegg. Svefnherbergi er með fataskáp. Öll gólf eru dúklögð. Góð geymsla er í íbúðinni.

Hér er um mjög áhugaverða eign að ræða hvort sem er til heilsársbúsetu eða til frístundanota. Bifröst er í fögru umhverfi. Óþrjótandi möguleikar eru til útivistar með vinsælum gönguleiðum að Hreðavatni, á Grábrók og að fossinum Glanna.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:

Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.

Skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.

Engin umsýsluþóknun.