Hæðargerði 29b
730 Reyðarfjörður
Ásett verð: 74.500.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 191 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 4
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 1985
- Fermetraverð
- 390.052 kr.
Lýsing
Hæðargerði 29B, Reyðarfirði: Einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr í rótgrónu íbúðarhverfi á Reyðarfirði. Húsið er byggt 1985 úr timbri, skráð 191,0 m² að stærð, þar af 36,0 m² bílskúr, og stendur á 1.025 m² lóð. Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og tvær stofur.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is
Eignin skiptist upp í forstofu, gang, stofu í tveimur hlutum, sjónvarpsherbergi, eldhús með borðkrók, hjónaherbergi með litlu baðherbergi inn af, tvö svefnherbergi, aðalbaðherbergi og innbyggðan bílskúr þar sem útbúið hefur verið um 12 m² herbergi innst. Pallur er við húsið.
- Einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr
- Fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi
- Eldhústæki endurnýjuð 2024
- Rofar og tenglar endurnýjaðir að miklu leyti 2021
- Rótgróið hverfi
- LAUS VIÐ KAUPSAMNING
SKIPULAG EIGNAR:
Forstofa : Gengið inn að sunnanverðu, forstofa með gangi inn í íbúðina.
Gangur : Gangur að svefnherbergjum og baðherbergi, lítil geymsla innan af gangi.
Stofa : Stofa í tveimur hlutum, borðstofa í miðju húsi og setustofa sem gengur út úr húsinu til norðurs.
Sjónvarpsherbergi : Sjónvarpsherbergi við stofu.
Eldhús : Eldhús með borðkrók og innréttingu, eldhústæki endurnýjuð 2024.
Hjónaherbergi : Hjónaherbergi við hlið bílskúrs. Inn af því er lítið baðherbergi með salerni og sturtu.
Svefnherbergi 2 og 3 : Tvö svefnherbergi í norðausturhluta hússins.
Baðherbergi : Aðalbaðherbergi við gang, stærra en á upphaflegri teikningu.
Bílskúr : Innbyggður bílskúr vestast í húsinu. Innst í honum hefur verið útbúið herbergi um 12 m² sem nýtt er sem fjórða svefnherbergið. Rýmið er skráð sem bílskúr hjá HMS.
Garður/lóð : 1.025 m² leigulóð með palli við húsið.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is
Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer : F2177246
Stærð : Einbýlishús á einni hæð, 191,0 m² (íbúð 155,0 m², bílskúr 36,0 m²)
Byggingarár : 1985
Byggingarefni : Timbur
Gildandi fasteignamat : 61.250.000 kr.
Fyrirhugað fasteignamat 2027 : 59.600.000 kr.
Brunabótamat : 103.800.000 kr.
Lóð : Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, leigulóð, stærð lóðar er 1.025,0 m²
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1 . Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1,6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2 . Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3 . Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4 . Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.
Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði