Þönglabakki 6

109 Reykjavík

Ásett verð: 59.999.000 kr.

Þönglabakki 6
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
79,9 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
1989
Fermetraverð
750.926 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir: Vel staðsett 79,9 m² verslunar- og þjónusturými við Þönglabakka 6 í 109 Reykjavík. Eignin er skráð sem verslun og er staðsett í Mjódd, á grónu og þekktu verslunar- og þjónustusvæði með góðu aðgengi og sýnileika að göngusvæði.

Rýmið hefur verið nýtt undir snyrti- og naglastofu og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika. Eignin gæti hentað vel undir verslun, þjónustu, snyrtistofu, heilsutengda starfsemi, skrifstofu eða annan sambærilegan rekstur, eftir nánari skoðun kaupanda.

Eignin skiptist í rúmgott og bjart aðalrými, vinnuherbergi, kaffiaðstöðu/starfsmannaaðstöðu, geymslurými og snyrtingu.

Nánari lýsing:

Móttaka/biðsvæði: Við inngang er aðstaða fyrir móttöku og biðsvæði. Inngangur er beint frá göngusvæði og eignin nýtur góðs sýnileika.

Aðalrými: Bjart og opið rými með góðum gluggum að göngusvæði. Rýmið er í dag innréttað sem snyrti- og naglastofa með móttöku-/biðsvæði og nokkrum vinnustöðvum. Ljóst gólfefni er á rýminu og góð lýsing í lofti.

Vinnuherbergi: Inn af aðalrými er sérstakt herbergi sem nýtist vel sem meðferðarherbergi, skrifstofa eða lokað vinnurými.

Kaffiaðstaða/starfsmannaaðstaða: Sér rými með innréttingu, vaski, efri skápum og aðstöðu fyrir kaffiaðstöðu/starfsmannaaðstöðu.

Geymsla/lager: Geymslurými með hillum og góðu plássi fyrir vörur, tæki og annan rekstrarbúnað.

Snyrting: Snyrting með salerni og handlaug. Einnig er vaskaaðstaða í rýminu.

Aðkoma og umhverfi: Eignin er staðsett í Mjódd, einu þekktasta verslunar- og þjónustusvæði Breiðholts. Í næsta nágrenni er fjölbreytt verslun og þjónusta ásamt góðu aðgengi fyrir viðskiptavini. Inngangur er frá yfirbyggðu göngusvæði og eignin nýtur góðs sýnileika.

Annað: Lausir munir, tæki og búnaður tengdur núverandi starfsemi geta verið til sölu eftir nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir:

Díana Thanh Andradóttir, aðstoðamaður fasteignasala, í síma 868-0146 eða diana@fastborg.is

Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali, í síma: 868-2222 eða victor@fastborg.is