Útskálar 1

850 Hella

Útskálar 1
Tegund
Einbýlishús
Stærð
136 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1964

Lýsing

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-5028

EINBÝLISHÚS VIÐ ÚTSKÁLA NR 1 Á HELLU.

Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1964 og er múrað og málað að utanverðu. Tvær hliðar hafa verið klæddar með málmklæðningu. Húsið telur: Anddyri með flísum á gólfi. Gang með parketi á gólfi. Stofu með parketi á gólfi. Eldhús með parketi á gólfi og þokkalegri innréttingu, með uppþvottavél Þrjú herbergi með parketi á gólfum, vaskur er í einu þeirra. Óinnréttað baðherbergi . Salerni með flísum á gólfi. Þvottahús , sem jafnframt er bakinnangur í húsið með flísum á gólfi og innréttingu. Við húsið er hellulögð gangstétt og gróinn garður. Stutt er í grunnskóla, leikskóla, íþróttahús og sundlaug.

Útskálar 1 voru upphaflega byggðir sem skólastjórabústaður en húsnæðið hefur verið nýtt undir skólastarf frá árinu 2006. Ekki liggur fyrir heildstætt yfirlit yfir þær framkvæmdir og endurbætur sem gerðar hafa verið á fasteigninni á síðari árum.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528 og netfang: gudmundur@fannberg.is.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.