Hlíðarhjalli 72

200 Kópavogur

Ásett verð: 209.900.000 kr.

Hlíðarhjalli 72
Tegund
Einbýlishús
Stærð
314,7 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Byggingarár
1987
Fermetraverð
666.984 kr.

Lýsing

** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

RE/MAX ásamt Þórdísi Björk og Salvöru Þóru Davíðsdætrum löggiltum fasteignasölum kynna:

Einstaklega rúmgóða og fjölskylduvæna eign á frábærum útsýnisstað í Suðurhlíðum Kópavogs. Eignin er alls 314,7m² á tveimur hæðum með tvöföldum góðum bílskúr, stórum og björtum stofum, fallegum suðurgarði og 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á neðri hæð (á sér fastanúmeri).

Húsið hefur fengið mjög gott viðhald innan sem utan. Staðsetning er einstaklega góð þar sem það stendur innst í botnlanga við opið og gróið svæði og nýtur fallegs útsýnis og eru góðir skjólveggir í fallegum garðinum.

* Fyrirhugað fasteignamat ársins 2027 er samtals kr. 213.800.000.- *

Helstu kostir eignarinnar

- Rúmgóð og fjölskylduvæn eign á tveimur hæðum.

- Staðsett innst í botnlanga við opið og gróið svæði með fallegu útsýni yfir Kópavog, til Bláfjalla og Suðurnesja.

- Stórar og sólríkar svalir til suðurs og skjólgóðar verandir og notalegt útisvæði.

- Bjartar stofur með stórum gluggum og arni.

- Rúmgóð hjónasvíta með fataherbergi.

- Möguleiki á fjórða svefnherberginu í stærri íbúðinni.

- Tvö rúmgóð baðherbergi í aðalíbúð.

- 62,1 fm, 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á neðri hæð og er hún á sér fastanúmeri

- Tvöfaldur 43,4 m² bílskúr með góðri vinnuaðstöðu fylgir stærri eigninni á fastanúmeri og er snjóbræðsla á bílaplani, stéttum og í tröppum

- Gróinn, afgirtur og skjólgóður suðurgarður

- Húsið málað að utan árið 2025.

* VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

** HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN! Íbúð 0201 - - Íbúð 0101

*** HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI - ÁN HÚSGAGNA 0201 - - ÁN HÚSGAGNA 0101

---------------------------------------------

Viðhald og endurbætur

2010 – Flísar í eldhúsi.

2012 – Gler í stofu á efri hæð endurnýjað með einangrunargleri.

Skipt hefur verið um gler í flestum opnanlegum fögum á suðurhlið.

Skipt um gler í gluggum hjónaherbergis og svefnherbergis til suðurs á efri hæð.

2016 – Baðherbergi og forstofa endurnýjuð, m.a. gólfhiti.

2017 – Þak pússað upp og málað.

2020 – Fiskibeinaparket á efri hæðinni pússað, litað og lakkað.

2021 – Borið á skjólveggi á lóðarmörkum og geymsluskúr í garði.

2023 – Skipt um öll nema ein blöndunartæki á baðherbergjum og eldhúsum í báðum íbúðum. Þessi einu eru til og fylgja með.

2025 – Húsið málað að utan; steyptir veggir, gluggakarmar, hurðar og þakkantur. Austurgafl er eftir.

2025 – Borið á skjólveggi á lóðarmörkum og geymsluskúr í garði.

2025 – Tröppur á vesturhlið hússins lagfærðar, múraðar og yfirborðsmeðhöndlaðar til vatnsvarnar.

--------------------

Nánari lýsing

Húsið var byggt árið 1987 og er skráð í heild sinni 314,7 fm samkvæmt Fasteignaskrá HMS, þar af er hluti eignar með fastanúmeri F2062072 samtals 252,6 fm sem skiptist í íbúðarhluta 209,4 fm og tvöfaldur bílskúr 43,4 m², en hluti eignar með fastanúmeri F2062071 er 62,1 fm íbúð á neðri hæð með sérinngangi. Í dag er hurð á milli eignanna en hægt að loka endanlega fyrir það. Íbúðin á jarðhæðinni er í útleigu.

Efri hæð

Forstofa : Flísalögð með gólfhita. Forstofan var endurnýjuð árið 2016.

Stofa/borðstofa : Einstaklega bjartar og rúmgóðar stofur með stórum gluggum og fallegu útsýni. Útsýni er yfir Kópavog, til Bláfjalla í austri og Suðurnesja í suðri. Setustofa með arni liggur samhliða borðstofu og úr borðstofunni er gengið út á stórar og sólríkar svalir til suðurs.

Eldhús : Rúmgott með eikarinnréttingu og góðu skápa- og vinnuplássi. Tveir ofnar, spanhelluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggar eru á tvo vegu og góður borðkrókur. Innrétting/skápur í hálfri hæð skilur eldhús og borðstofu að hluta en viðheldur um leið góðu flæði milli rýmanna.

Svefnherbergi : Tvö svefnherbergi eru á hæðinni. Annað er rúmgott með góðum gluggum til suðurs og hitt er staðsett inn af forstofu.

Baðherbergi : Endurnýjað árið 2016. Flísalagt með gólfhita, sturtuklefa, innréttingu með handlaug og skápum, upphengdu salerni og glugga með opnanlegu fagi.

Gegnheilt eikarparket með fiskibeinamunstri er á stofum, holi og stærra svefnherberginu. Fljótandi parket er á minna svefnherberginu og flísar á eldhúsi.

Bílskúr : Innangengt er um gang og eldvarnarhurð í tvöfaldan bílskúr. Þar eru góðir gluggar til austurs og suðurs, vinnubekkur með vaski, heitt og kalt vatn og góð vinnuaðstaða. Epoxy er á gólfi.

Neðri hæð :

Hjónasvíta : Rúmgóð og sérlega vel skipulögð. Þar er gangur með miklu skápaplássi, stórt hjónaherbergi með gluggum út í garð og fataherbergi með lokuðum skápum.

Sjónvarpsstofa/hol : Rúmgott og notalegt fjölskyldurými með gluggum til suðurs. Rýmið býður jafnframt upp á möguleika á fjórða svefnherberginu. Útgengt er á pall/verönd og þaðan í afgirtan, gróinn og skjólgóðan suðurgarð.

Baðherbergi : Rúmgott og flísalagt með sturtuklefa, baðkari, innréttingu með tveimur handlaugum og góðum skápum. Gluggi er með opnanlegu fagi og útgengt á pall þar sem tilvalið er að koma fyrir heitum potti.

Þvottahús : Góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavélar í vinnuhæð, vinnubekk, vaski og góðu vinnuplássi.

Geymsla : Rúmgóð með miklu hilluplássi og tengi fyrir frystiskáp.

2ja herbergja íbúð á neðri hæð (með sér fastanúmer )

Á vesturhlið hússins er 62,1 m² íbúð með sérinngangi.

Forstofa : Flísalögð. Hiti er í stétt fyrir framan innganginn.

Stofa : Opin og björt með stórum gluggum til suðurs og útsýni út í garðinn. Einnig er gluggi til vesturs. Stofan tengist miðrými/holi með góðum skápum.

Svefnherbergi : Rúmgott með fataskápum og glugga til suðurs út í garðinn.

Eldhús : Eikarinnrétting, eldavél með innbyggðum bakaraofni og gluggi til vesturs. Há borðplata sem hægt er að sitja við.

Baðherbergi : Endurnýjað árið 2018. Flísalagt með innréttingu, sturtuklefa, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.

Fljótandi harðparket er á stofu, svefnherbergi og eldhúsi.

Geymsla : Lítil útigeymsla fyrir hjól og annað smálegt er undir tröppum við inngang íbúðarinnar.

Garður og útisvæði

Garðurinn er gróinn, fallegur og afgirtur bæði að austan og vest…