Laugarás 1

806 Selfoss

Ásett verð: 119.900.000 kr.

Laugarás 1
Tegund
Einbýlishús
Stærð
227,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2004
Fermetraverð
527.497 kr.

Lýsing

Fallegt einbýlishús við Laugarás í Bláskógarbyggð á einni hæð sem byggt var árið 2004. Húsið stendur á 1.765 fm lóð sem er í góðri rækt og útsýni yfir nærliggjandi sveitir. Húsið er samtals 227,3 fm þar af er bílskúrinn 70,8 fm með tveimur innkeyrsluhurðum. Á lóðinni eru þrjár útigeymslur, tvær þeirra eru upphitaðar en geymslurnar eru ekki inn í uppgefnum fermetrum, einnig er heitur pottur á verönd aftan við húsið. Gólfhiti er í húsinu.

Forstofa með flísum á gólfi, innangengur fataskápur.

Gesta salerni er innaf forstofu með flísum á gólfi og upphengdu salerni.

Herbergi innaf forstofu með parketi á gólfi, lúga í lofti en þar er geymsluloft.

Alrými samanstendur af borðstofu og stofu, flísar og parket á gólfum, útgengið út á pall/garð, hátt til lofts í alrými.

Þvottahús með innréttingu, útgengt út í garð.

Herbergi með flísum og skápum.

Hjónaherbergi með flísum og skápum, útgengt út í garð.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturta og baðkar.

Eldhús með flísum á gólfi, rúmgóður borðkrókur.

Bílskúrinn er 70,8 fm með flísum á gólfi, geymsla og geymsluloft eru í bílskúr ásamt salerni. Tvær innkeyrlsuhurðar eru á bílskúrnum.

Allar nánari upplýsingar veitir Kristján þórir Hauksson lögg. fasteignasali í síma 696-1122 eða á netfanginu kristjan@fastlind.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.