Bræðraborgarstígur 7 (402)
101 Reykjavík
Ásett verð: 109.000.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 121,5 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1946
- Fermetraverð
- 897.119 kr.
Lýsing
Háborg fasteignasala og Þórunn Páls lgf kynna íbúð 402 er glæsileg fimm herbergja útsýnisíbúð með 20,7 fm þaksvölum til vesturs og 4,5 fm svölum til austurs í þessu glæsilega lyftu húsi í hjarta Gamla Vesturbæjarins. Birt flatarmál er 121,5 fm þar af er íbúð 114,3 fm og geymsla í kjallara 7,2 fm. Tvær stórar samliggjandi stofur með glæsilegu útsýni og útgengi á þaksvalirnar. Tvö stór svefnherbergi annað er 14 fm og með góðum skápum og hitt í kringum 11 fm. Gott eldhús og vel innréttað þvottaherbergi með útgengi á austursvalirnar. Rúmgott baðherbergi með opnanlegum glugga. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsd. lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is
Eignin er ekki í samræmi við samþykktar teikningar að því lleyti að minnsta svefnherbergið er ekki til staðar og er stofan stærri sem því nemur. Eins er herbergið við hliðina á þvottaherberginu í kringum 11 fm en ekki 8,6 fm þar sem innsti hluti gangsins er ekki til staðar og herbergið er stærra sem því nemur. Stofa og borðstofa eru alveg í einu rými en búið er að fjarlægja vegg sem var á milli.
Góður fataskápur er á vinstri hönd þegar gengið er inn í íbúðina en bjartar stórar stofur á hægri hönd. Á vinstri hönd er baðherbergið sem er flísalagt í hólf og gólf með vönduðum bleikum og hvítum flísum. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu og þar er bæði baðker og sturtuklefi. Næst er eldhúsið sem er með góðu vinnuplássi og fallegum útsýnisglugga til austurs. Við hliðina á því er þvottahús með mjög góðu skápaplássi, stóru vinnuborði og skolvaski. Útgengt er á svalir til austurs með fallegu útsýni. Við hliðina á þvottahúsinu er rúmgott svefnherbergi með glugga til austurs og á móti því er hjónaherbergið með góðum skápum og útgengi á glæsilegar þaksvalirnar sem eru 20,7 fm er frábæru útsýni og eru mikill kostur við eignina. Stofurnar eru mjög stórar og bjartar með frábæru útsýni og annar útgangur á svalirnar er úr stofu.
Einstaklega heillandi og skemmtileg íbúð í lyftuhúsi á þessum vinsæla stað í hjarta Gamla Vesturbæjarins þar sem stutt er í veitingastaði og þjónustu og sólarlagið svíkur engan.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Páls lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is