Brautarholt 19

355 Ólafsvík

Ásett verð: 41.700.000 kr.

Brautarholt 19
Tegund
Einbýlishús
Stærð
201,4 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1981
Fermetraverð
207.051 kr.

Lýsing

**** VEGNA SÉRSTAKRA AÐSTÆÐNA BÝÐST ÞETTA FÍNA EINBÝLISHÚS LANGT UNDIR MARKAÐSVIRÐI ****

Nánari upplýsingar veitir Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali í síma 7668484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is

Gott 5 herbergja steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í Ólafsvík. Húsið er byggt árið 1981. Talsvert hefur verið unnið að endurbótum að húsinu undanfarin misseri, en ýmislegt er þó óklárað og/eða þarfnast endurnýjunar. Búið er að endurnýja þak, leggja hita í gólf á neðri hæð, endurnýja skólp að hluta og skipta um einn glugga í stofunni, sjá nánar "ástand og viðhald skv. eiganda" hér að neðan. Öll helsta þjónusta er í göngufæri, s.s. matvöruverslun, leikskóli, grunnskóli, líkamsrækt, sundlaug og strætó.

Upplýsingar úr FMR: Brautarholt 19, 355 Ólafsvík, 201,4m², eign merkt 01-01, fastanúmer 210-3471 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Skipting eignar:

Efri hæð: 77,9m² - Forstofa, gestasnyrting, hol, stofa, eldhús, búr og bílskúr.

Neðri hæð: 94m² - 4x svefnherbergi, gangur, baðherbergi, þvottahús og geymsla.

Bílskúr: 29,5m²

Lýsing eignar:

Forstofa með flísum á gólfi.

Gestasalerni er við hlið forstofu, flísar á gólfi, vegghengt salerni og rúmgóð innrétting með handlaug og spegli yfir handlaug.

Hol með með flotuðu gólfi.

Stofan og borðstofan eru rúmgóðar með parketi á gólfi og hurð út á góðan afgirtan sólpall.

Eldhúsið er rúmgott með borðkróki og eldri innréttingu með góðu skápaplássi.

Búr er inn af eldhúsi með flísum á gólfi.

Neðri hæð:

4x svefnherbergi með flotuðum gólfum og gólfhita, hjónaherbergið er með góðu skápaplássi.

Gangur með flotuðum gólfum og gólfhita.

baðherbergi með flísum á gólfi, baðkari með sturtu, vegghengdu salerni og innréttingu með handlaug og spegli yfir handlaug.

Þvottahús er inn af eldhúsi, með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla með flísum á gólfi er einnig inn af eldhúsi.

Geymsluloft er yfir húsinu.

Góður sólpallur .

Gott útsýni .

Ástand og viðhald skv. eiganda:

Járn á þaki og pappi skift um sumarið 2019 á eftir að klára rennur og þak kantinn

Skift var um stóra gluggann í stofunni sem liggur í suðurátt og farið í sprunguviðgerðir á austurgafli hússins

Skipt um skólplögn frá klósetti á neðri hæð og út fyrir grunn og hiti settur í gólf á neðri hæð í gangi og öllum svefnherbergjum. Einnig liggja tvær lagnir frá hitakistunni tilbúnar til að fara í gólfið inná baðherberginu, einnig ekki var klárað að steypa í gólfið inná baðherberginu þar sem það stóð til að breyta sturtunni og leggja þá nýja lögn frá því niðurfalli og tengja inná þá lögn.

Það á eftir að skipta um flest alla glugga í húsinu sem eru komnir á tíma og a.m.k. tvær útihurðir (hurðina út á pallinn á efri hæð og hurðina út í garð á neðri hæð)

Það á eftir að ganga frá götum þar sem ofnar voru í herbergjum á neðri hæð

Eldhús innréttingin er orðin lúin.