Hraungata 19

210 Garðabær

Ásett verð: 84.900.000 kr.

Hraungata 19
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
93,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2022
Fermetraverð
908.994 kr.

Lýsing

Glæsileg og björt 3ja herbergja útsýnisíbúð með stæði í lokuðum bílakjallara í Urriðaholti

Einstaklega falleg og björt 3ja herbergja íbúð með fallegu útsýni, góðum svölum og sérbílastæði í lokuðum bílakjallara.

Eignin er í vönduðu og fallegu fjögurra hæða fjölbýlishúsi með lyftu við Hraungötu 19 í Urriðaholti í Garðabæ.

Eignin getur verið laus við kaupsamning!!

Íbúðin er samtals 93,4 fm, þar af er íbúðarrýmið 87,1 fm og sérgeymsla í sameign 6,3 fm.

Eignin býður upp á björt og vel skipulögð rými, vandaðar innréttingar frá Axis, útsýnissvalir og

þægindi á borð við sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð. Hægt er að ganga inn í svalainngang frá 1. hæð

og einnig 3. hæð og því aðgengi í íbúðina mjög þægilegt.

Innbyggð lýsing með dimmer í forstofu, hluta stofu, og í hjónaherbergi.

Nánari lýsing

Forstofa:

Sérinngangur er af svölum. Í forstofu eru fataskápar og parket á gólfi.

Eldhús og stofa: Bjart og opið alrými þar sem eldhús og stofa mynda notalega heild.

Úr stofu er gengið út á rúmgóðar útsýnissvalir sem eru 5,9 fm .

Eldhúsinnréttingin er falleg og sérsmíðuð frá Axis. Þar er helluborð, ofn í vinnuhæð, innfelld uppþvottavél og stæði fyrir ísskáp.

Svalir eru rúmgóðar sem snúa í suðvestur með óhindruðu útsýni. Búið er að teikna upp svalalokanir fyrir húsið.

Hjónaherbergi: Rúmgott, 15,7 fm herbergi með fataskápum.

Barnaherbergi: 11,8 fm herbergi með fataskáp.

Baðherbergi: Falleg innrétting frá Axis, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.

Flísar eru á gólfi og hluta veggja.

Þvottahús: Þvottahús, 3,1 fm, með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, vaski og skáp.

Geymsla: Sérgeymsla í sameign, 6,3 fm.

Sameign: Hjóla- og vagnageymsla er í sameign hússins.

Bílastæði: Sérstæði merkt B03 í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð.

Vandað fjölbýlishús á góðum stað í Urriðaholtinu. Húsið er fjögurra hæða fjölbýlishús og er klætt að utan með 13 íbúðum, lyftu og lokaðri bílageymslu.

Sérstakt loftræstikerfi er í hverri íbúð sem stuðlar að betri loftgæðum og er orkusparandi.

Byggingaraðili er MótX ehf ., fyrirtæki með mikla reynslu af nýbyggingum og er meðal framsæknustu fyrirtækja í byggingageiranum. Félagið er traust og leggur metnað í vandaða uppbyggingu.

Góð staðsetning í Urriðaholti þar sem stutt er í skóla, leikkóla, sundlaug, Heiðmörk, fallega náttúru og gönguleiðir. Einnig stutt í helstu samgönguæðar höfuðborgarsvæðisins og matvöruverslanir.

Í jaðri hverfisins er einn Oddur, einn glæsilegasta golfvöllur landsins.

Falleg og vel skipulögð íbúð með útsýni, vönduðum innréttingum, sérbílastæði í lokaðri bílageymslu og góðri staðsetningu í eftirsóttu hverfi í Garðabæ.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]