Víðigerði 0

320 Reykholt í Borgarfirði

Ásett verð: 220.000.000 kr.

Víðigerði 0
Tegund
Lóð
Stærð
11729,8000068665 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Fermetraverð
18.756 kr.

Lýsing

Borgir fasteignasala kynnir eignina Víðigerði 0, 320 Reykholt Borgarfirði, nánar tiltekið eign merkt 00-00, fastanúmer 210-7990 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Víðigerði 0 er lögbýli skráð sem hér segir hjá FMR: birt stærð 8400 fm leigulóð, lóðarleigusamningur gildir til ársins 2068.

Um er að ræða einbýlishús , 4 gróðurhús , eitt þeirra er í notkun og í því er ræktað tómatar og sítrónugúrka, einnar sinnar tegundar á Íslandi. Matarvagn þar sem seld er tómatsúpa sem gerð er úr tómötum sem ræktaðir eru á staðnum. Auk þess eru seldar pylsur, fiskur og franskar ofl. Í matarvagninum er stór gaseldavél, þrír vaskar og tengi fyrir ísskáp/frysti. Þrjú gámasalerni fyrir viðskiptavini matarvagnsins fylgja eigninni. Einnig er vélarskemma sem búið er að breyta í íbúðaraðstöðu . 40 fm geymslu gámur með hillum. 2 sekúntulítrar á ári af heitu vatni fylgja eigninni samkvæmt seljanda.

Eignin býður uppá mikla möguleika í ferðaþjónustu. Hér eru tækifæri fyrir samhenta fjölskyldu eða duglega einstaklinga sem eru tilbúin í skemmtilegt og fjölbreytt ævintýri.

Nánari upplýsingar veita Jóhanna M Jóhannsdótir lgf sími 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is

Bjarklind Þór lgf, í síma 6905123, tölvupóstur Bjarklind@borgir.is.

Rúmgott einbýlishús fjölskylduvænum stað. Húsið hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldur sem leita að þægindum, góðri staðsetningu og miklum framtíðarmöguleikum. Á undanförnum árum hefur eignin fengið gott viðhald og ýmsar endurbætur.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: Með flísum á gólfi

Baðherbergi: Með flísum á gólfi, sturtuklefa, salerni og vaskaskáp

Herbergi I: (Forstofuherbergi) með vínilparketi

Eldhús/borðstofa: Opið rými eldhúsinnréttingin er komin til ára sinna en nýlegt víniparket er á rýminu

Herbergi II: Með vínilparketi og tvöföldum skáp

Herbergi III: Með víniparketi á gólfi og fjórföldum skáp

Herbergi IIII : Með vínilparketi og tvöföldum fataskáp

Baðherbergi: Með baðkari, salerni, góðum vaskaskáp, flísum á gólfi og hurð sem hægt er að ganga út um.

Stofa: Með vínilparketi og útgengi út á stórann pall

Pallur: Með glerveggjum og 12 manna heitum potti.

Háaloft/geymsluloft: Yfir parti af húsinu

Bílskúr: Rúmgóður

Helstu kostir:

• Rúmgott og fjölskylduvænt skipulag

• Stór og gróin lóð

• Góð geymslu- og bílskúrsaðstaða

• Mikið viðhald og endurbætur síðustu ár

• Stutt í skóla, leikskóla og íþróttastarf. Skólann og leikskólann er nýlega búið að taka í notkun og börnin eru sótt og keyrð í skólann af skólarútu.

Húsið: Skipt um vatnsneyslu/varmaskipti og ofna 2019

Klárað að klæða húsið 2020

Skipt um þak og sett nýtt járn 2020

Skipt um glugga 2010

Bílaplan steypt 2010

Pallur og glerveggur 2019

Skipt um kaldavatnslögn 2019

Íbúðaraðstaða:

Forstofa: Með flísum á gólfi

Stofa/eldhús: Í opnu rými með víniparketi á gólfi

Herbergi I: Með víniparketi á gólfi

Herbergi II: Með víniparketi á gólfi

Baðherbergi: Með flísum á gólfi, vaskaskáp, salerni og sturtuklefa

Geymslupláss í lofti

Hentar vel fyrir starfsfólk eða til útleigu.

Lítil sundlaug er á staðnum sem hentar vel til einkanota.

Umhverfi:

Til sölu er vel skipulögð eign sem býður upp á rúmgóðar vistarverur, góða geymsluaðstöðu og stóran gróinn garð.

Stutt er í skóla, leikskóla, skólabíllinn kemur og sækir börnin og keyrir þau úr og í skóla.

Deildartunguhver er vatnsmesti hver Evrópu (og þ.a.l. Íslands líka)

Samantekt:

Einbýlishús

Íbúðaraðstaða

Matarvagn með veitingasölu

Gámasalerni

Fjögur gróðurhús

Geymslugámur

Sundlaug

2 sekúntulítrar á ári af heitu vatni fylgja eigninni samkvæmt seljanda.