Tröllateigur 47

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 81.900.000 kr.

Tröllateigur 47
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
100,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2004
Fermetraverð
813.307 kr.

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 16. nóvember frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 100,7 m2, 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð við Tröllateig 47 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 100,7 m2, þar af íbúð 93,5 m2 og geymsla 7,2 m2. eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í sameign. Stór timburverönd í vesturátt og fallegt útsýni. Búið er að setja upp rafhleðslustöðvar á bílastæði fyrir framan húsið.

Góð staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu.

Endurbætur sem hafa verið gerðar samkvæmt seljanda: Þakið var yfirfarið fyrir nokkrum árum. Gert við svalir og tröppur framan á húsinu fyrir um 3 árum. Tréverk málað að utan fyrir um 2 árum. Skipt um öll ljós í sameign og útiljós á þessu ári. Hleðslustöðvar sett upp á þessu ári.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:

Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.

Eldhús er með hvítri innréttingu og borðkrók, parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, innbyggð uppþvottavél, helluborð, vaskur og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.

Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á stóra timburverönd.

Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt, með fallegri ljósri innréttingu. Upphengdu salerni, baðkari og sturtu.

Þvottarhús er með hillum, flísar á gólfi. Gluggi er á þvottahúsi.

Sérgeymsla er í sameign. Skráð 7,2 m2.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Verð kr. 81.900.000