Vatnsstígur 20

101 Reykjavík

Ásett verð: 134.900.000 kr.

Vatnsstígur 20
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
107,6 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2015
Fermetraverð
1.253.717 kr.

Lýsing

Vatnsstígur 20, 101 Reykjavík – Rúmgóð og vönduð íbúð í hjarta miðborgar Reykjavíkur með tveimur bílastæðum í bílageymslu

Falleg og vel skipulögð 107,6 fm íbúð á 1. hæð í glæsilegu lyftuhúsi í hjarta miðborgar Reykjavíkur. Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu, sem er afar verðmætur kostur á þessum eftirsótta stað.

Íbúðin er björt og rúmgóð með 2,70 metra lofthæð, gólfhita í öllum rýmum og stórum gluggum. Glerlokaðar svalir snúa til suðvesturs.

Íbúðin er vel skipulögð með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá GKS úr silfureik og borðplötum úr náttúrusteini í eldhúsi og á baðherbergi. Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu og rúmgóðri walk-in sturtu. Á gólfum er vandað eikarparket en flísar á baðherbergi og í þvottahúsi.

Eigninni fylgir 10 fm sérgeymsla í sameign auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Húsvörður er í húsinu.

Innra skipulag

Forstofa, rúmgóð stofa og borðstofa, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús og glerlokaðar svalir. Í sameign er sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu.

107,6 fm vel skipulögð íbúð.

Tvö sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Glerlokaðar suðvestursvalir.

2,70 metra lofthæð.

Gólfhiti í allri íbúðinni.

Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá GKS.

Náttúrusteinn á borðplötum í eldhúsi og á baðherbergi.

Flísalagt baðherbergi með walk-in sturtu.

Sér þvottahús innan íbúðar.

10 fm sérgeymsla.

Húsvörður og lyfta í húsinu.

Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Mögulegt er að kaupa íbúðina með einu bílastæði samkvæmt nánara samkomulagi.

Staðsetning

Vatnsstígur er á einum eftirsóttasta stað miðborgar Reykjavíkur. Hér nýtur þú þess að búa í hjarta miðborgarinnar með öllum þeim þægindum sem henni fylgja, auk tveggja bílastæða í lokaðri bílageymslu.

Nánari upplýsingar veita:

Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, s: 8660507 eða unnur@gardatorg.is

Sigurður Tyrfingsson, löggiltur fasteignasali og húsasmíðameistari, s: 898 3708 eða sigurdur@gardatorg.is

Garðatorg eignamiðlun

Lyngási 11, Garðabæ