Bleiksárhlíð

735 Eskifjörður

Ásett verð: 36.000.000 kr.

Bleiksárhlíð
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
128,5 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1979
Fermetraverð
280.156 kr.

Lýsing

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir, löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:

Bleiksárhlíð 2-4, Eskifirði.

5 herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi sem er 3 hæðir og kjallari. Íbúðin er falleg og rúmgóð og hefur hlotið ýmsar endurbætur í gegn um tíðina og er eldhúsinnréttingin nýleg og mjög stutt er síðan baðherbergi og salerni var endurnýjað en þar er um að ræða 2 aðskilin rými.

Af stigagangi er komið inn í afstúkaða forstofu með mjög nýlegum fataskáp, lítil stofa er á vinstri hönd og eldhús og borðstofa á hægri hönd. Lítið þvottahús/búr er inn úr eldhúsinu.

4 svefnherbergi eru í íbúðinni, eitt er teiknað sem geymsla en hefur verið stækkað og er með 2 gluggum.

Baðherbergið er tvískipt, salerni í sér rými og baðaðstaða í öðru.

Tvennar ágætlega rúmgóðar svalir.eru á íbúðinni, aðrar út af stærsta svefnherberginu og hinar út af borðstofunni.

Gott skápapláss er í íbúðinni.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara hússins.

Íbúðinni tilheyrir geymslurými í kjallara sem er ófrágengið.

Ágætt útsýni er frá íbúðinni.