Sunnusmári 13

201 Kópavogur

Ásett verð: 62.900.000 kr.

Sunnusmári 13
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
64,5 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
975.194 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Falleg tveggja herbergja íbúð í nýlegu lyftuhúsi við Sunnusmára 13 í Kópavogi. Góð fyrstu kaup. Íbúðin er skráð 64,5 fm og skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu í kjallara. Góðar svalir sem vísa til norðvesturs. Fallegur sameiginlegur garður til suðvesturs sem er fullfrágenginn og fjöldi bílastæða á lóð. Frábær staðsetning miðsvæðis í borginni og örstutt í alla þjónustu.

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:

Forstofa: Harðparket á gólfi. Góður fataskápur frá GKS.

Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting frá Nobilia með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Gott borð- og skápapláss. Harðparket á gólfi.

Borðkrókur: Ágætur borðkrókur er við eldhús með sérsmíðuðum bekk. Harðparket á gólfi.

Stofa: Björt og opin við eldhús með harðparketi á gólfi. Útgengi úr stofu á 4,2 fm svalir sem vísa til norðvesturs.

Svefnherbergi: Er mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Fataskápar frá GKS. Góð vinnuaðstaða er innst í herbergi.

Baðherbergi: Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Tengi fyrir þvottavél/þurrkara.

Geymsla: Ágæt 6,4 fm geymsla fylgir íbúð og er staðsett í kjallara.

Nánari upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is ***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook