Framnesvegur 20-22
230 Reykjanesbær
Ásett verð: 74.500.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 89,4 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2002
- Fermetraverð
- 833.333 kr.
Lýsing
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu þriggja herbergja útsýnisíbúð á 6. hæð í lyftuhúsi. Eigninni fylgir rúmgóð geymsla, yfirbyggðar svalir og stæði í bílahúsi.
Birt stærð eignarinnar er 89,4fm.
Húsið var tekið í gegn að utan sumarið 2023: Múrviðgerðir, veggir háþrýstiþvegnir, sílaðir og málaðir. Þak var yfirfarið og málað og hluti sameignar málaður.
------ Frábært útsýni frá eigninni til suðurs og vesturs ------
Snyrtileg sameign að lyftu, sjalfvirk rennihurð er inn í forstofu hússins.
Forstofa er parketlögð og þar er góður skápur.
Stofa er parketlögð. Gengið er út á yfirbyggðar svalir frá stofu.
Eldhús hefur parket á gólfi, þar er snyrtileg eikar-innrétting ásamt góðum tækjum. Innbyggð uppþvottavél fylgir með eigninni. Eldhús og stofa liggja saman í björtu rými.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, þar er baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting og upphengt salerni.
Þvottahús er inn af baðherbergi, þar eru flísar á gólfi.
Svefnherbergin hafa parket á gólfi og góður skápur er í hjónaherbergi. Búið er að opna á milli herbergis og stofu svo stofa er mjög rúmgóð.Auðvelt að breyta aftur.
*Frábært útsýni frá yfirbyggðum lokuðum svölum.
*Sérmerkt stæði í bílageymslu.
*Sér geymsla fylgir eigninni.
*Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
*Örstutt í fallegar gönguleiðir meðfram sjónum.
Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Magnússon lfs.
s. 863-4495 / 420-4000
dori@studlaberg.is