Pósthússtræti 5

230 Reykjanesbær

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Pósthússtræti 5
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
108,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
2021
Fermetraverð
690.959 kr.

Lýsing

Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega rúmgóða 3ja herbergja íbúð við Pósthússtræti 5 í Keflavík.

Um er að ræða 108,4 fm íbúð með sér geymslu í kjallara, rúmgóð sameiginleg hjólageymsla og gott aðgengi um allt hús. Íbúðin er á 1.hæð og er með frábært útsýni til Reykjavíkur og yfir höfnina í Keflavík.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofa í opnu rými, baðherbergi, tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, útsýnissvalir með svalalokun, geymslu.

Góðar svalir með einstöku útsýni yfir Faxaflóann.

Nánari lýsing:

Forstofan er sameiginleg og hefur hún teppi á gólfi.

Forstofa innan íbúðar hefur parket á gólfi og þar er góður fataskápur.

Eldhús og stofa eru í opnu rými og er parket á gólfi, glæsileg eldhús innrétting með borðplötu úr kvarsstein. Stofan er rúmgóð og björt með frábæru sjávarútsýni. Hurð er út á svalir frá stofu.

Baðherbergi hefur flísar á á gólfi og veggjum. Hvít innrétting, borðplata úr kvartsstein, upphengt salerni. Þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.

Svefnherbergin eru tvö og hafa þau bæði parket á gólfi, þar eru góðir fataskápar.

Geymsla í kjallara er 8,4 fm.

Eignin stendur á fallegum stað við sjóinn og er vel staðsett með tilliti til aðgengis að verslun, þjónustu og samgönguleiða. Örstutt er í strandleiðina sem er 10 kílómetra hjóla- og gönguleið meðfram sjónum.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Haraldur Guðmundsson

Lögg. fasteignasali

S. 661-9391 eða 420-4000

halli@studlaberg.is