Grundartangi 46

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Grundartangi 46
Tegund
Raðhús
Stærð
70,2 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1981
Fermetraverð
1.138.177 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Raðhús á einni hæð við Grundartanga 46, 270 Mosfellsbæ. Eignin er í hjarta Mosfellsbæjar og er með suðurgarð og nýrri 40 fm verönd, lokuðum skjólvegg og smá garði.

Nánari lýsing:

Komið er inn á parketlagðan gang með fataskáp. Stofa og borðstofa eru í opnu rými og er parket á gólfi. Gengið er út á nýja verönd frá stofu. Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði með parketi á gólfi og er fataskápur í hjónaherbergi. Eldhúsið er opið yfir í stofu og er með hvítlakkaðri innréttingu. Baðherbergið er með flísum á gólfi og baðkari með sturtu. Nýleg innrétting er við vask á baðherbergi. Þvottahús/geymsla er innan íbúðar með nýlegum innréttingum. Allt parket í húsinu er nýlegt.

Gott sérbýli sem hentar mörgum. Næg bílastæði eru fyrir framan húsið.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090 ***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook