Geitland 8

108 Reykjavík

Ásett verð: 114.900.000 kr.

Geitland 8
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
147,39999961853 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1968
Fermetraverð
779.512 kr.

Lýsing

RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna: Fallega, bjarta og vel skipulagða 4ja herbergja endaíbúð á 2. hæð með bílskúr við Geitland 8. Íbúðin er á vinsælum stað og vel staðsett.

Íbúðin er samtals skráð 147,4 fm og þar af er bílskúr 20,9 fm.. Eignin býður upp á fallegt útsýni og er með yfirbyggðar suðvestursvalir, sem eru ekki inni í skráðum fermetrum eignar. Frá svölunum er fallegt útsýni. Eignin er laus við kaupsamning.

Hér getur þú skoðað eignina í 3D umhverfi!

*** Verið velkomin að hafa samband varðandi frekari upplýsingar í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is. ***

Lýsing eignar:

Forstofa með parketi á gólfi og fataskáp.

Eldhús er með innréttingu og tækjum, góður borðkrókur með fallegu útsýni.

Sér þvottahús og geymsla er inn af eldhúsi með flísum á gólfi og opnanlegu fagi.

Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfum, útgengt út á stórar og skjólgóðar yfirbyggðar svalir að hluta með glæsilegu útsýni sem snúa í suður. Hiti er gólfi svala.

Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi, góðir fataskápar, útgengt út á svalir sem snúa í norðaustur.

Tvö rúmgóð herbergi með parketi á gólfum með skápum.

Baðherbergi er flísalagt og er með baðkari, innréttingu og opnanlegum glugga.

Eigninni fylgir bílskúr 20,2 fm, í bílskúralengju neðan við húsið. Bílskúrinn er með hita og rafmagni.

Íbúðinni fylgir sérgeymsla á jarðhæð hússins. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er einnig á jarðhæð hússins. Einnig er sameiginlegt þvottahús á jarðhæð hússins.

Upplýsingar frá húsfélaginu varðandi viðhald og endurbætur á Geitlandi 8:

2014 Skólplagnir undir húsinu endurnýjaðar.

2017 Drenað norðan hússins og meðfram austur gafli.

2020 Hiti í stétt. Minnir að það hafi verið 2020

2022 Húsið múrviðgert og málað að utanverðu.

2022 Gluggar yfirfarnir og skipt um þá sem sem voru komnir á tíma.

2023 þak á bílskuralengju yfirfarið og gert við eftir þörfum.

2024 Dyrasími endurnýjaður

2026 þak málað og yfirfarið

Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.