Vestari-Hóll Flókadal

570 Fljót

Ásett verð: 78.000.000 kr.

Vestari-Hóll Flókadal
Tegund
Lóð
Stærð
550,199993133545 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Fermetraverð
141.767 kr.

Lýsing

Fasteignamiðstöðin er með til sölu lögbýlið Vestari-Hóll Flókadal, 570 Fljót. Fastanúmer 214-4440, landnúmer 146916.

Jörðin Vestari-Hóll í Flókadal er með eldri húsakosti en vel nýtanlegum. Ljósleiðar og heitt vatn frá hitaveitu komið að húsi. Lítilsháttar veiðihlunnindi. Íbúðarhúsið leigt út í sumar fyrir veiðimenn. Jörðin er ekki í ábúð. Landstærð um 170 hektarar.

Flókadalur er dalur í Skagafjarðarsýslu og er kenndur við Hrafna Flóka Vilgerðarson sem sagður er hafa numið þar land þegar hann sneri aftur til Íslands löngu eftir að hann hafði vetrardvöl í Vatnsfirði og gaf landinu nafn.

Framan við Flókadal er Hópsvatn og skilur lágur malargrandi það frá hafinu. Inni í dalnum er Flókadalsvatn. Um Flókadal rennur Flókadalsá. Allnokkrir bæir eru í dalnum, sem er grösugur en getur verið snjóþungur á vetrum. Nokkrir þverdalir ganga inn úr Flókadal og er þar afrétt sveitarinnar.

Tilvísunarnúmer: 10-2651 / 30-5098

Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000

tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is

Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir

Eftir lokun skiptiborðs:

Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is

Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is

María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,

til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta

fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.