Tröllagil 14 - 202

603 Akureyri

Ásett verð: 59.900.000 kr.

Tröllagil 14 - 202
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
82,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1991
Fermetraverð
726.061 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Tröllagil 14 - 202

**Laus við kaupsamning**

**Bílastæði í bílakjallara**

**Húsið málað 2023**

**Útsýni**

**Lyfta**

Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt sér stæði í bílgeymslu. Svalir til vesturs með góðu útsýni. Eignin er samtals 82,5 fm. auk um 3 fm. sérgeymslu í sameign.

Íbúðin skiptist í forstofu, geymslu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Sameiginlegt þvotthús á hæðinni sem þrjár íbúðir deila og er ekki hluti af uppgefnum fm. fjölda.

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.

Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi, útgengi út á svalir til vesturs með góðu útsýni.

Eldhús er með flísum á gólfi, eldhúskrók, innrétting með flísum milli efri og neðri skápa, bara útraganlegar skúffur í neðri hluta innréttingar, ekki skápar og bakaraofn í vinnuhæð.

Svefnherbergin eru tvö , bæði með dúk á gólfum og fataskápum.

Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Þar eru flísar á gólfi og á gólfi og hluta veggja, sturtuklefi, upphengt salerni, opnanlegur gluggi og góð innrétting við vask sem er endurnýjuð að hluta.

Geymslurnar eru tvær , önnur innan íbúðar og hin í sameignarrými. Dúkur á gólfi í geymslu innan íbúðar og hillur í báðum þeirra.

Þvottahús er sameiginlegt og er á sömu hæð og íbúðin, þrjár íbúðir deila þvottahúsi og er hver með sína vél, innrétting með vask og útgengi út á litlar svalir úr þvottahúsi.

Annað:

-Húsið málað að utan 2023

-Skipt um gler í íbúð 2016

-Frábært útsýni

-Mynddyrasími

-Ljósleiðari

-Sér stæði í bílgeymslu nálægt inngangi

-Allt klárt til að tengja rafmagn að bílastæði fyrir hleðslustöð

-Rafdrifnar hurðar í sameign að bílakjallara

-Snyrtileg sameign

-Stutt í leik- og grunnskóla, verslun og ýmsa aðra þjónustu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

olafur@byggd.is

greta@byggd.is

bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S: 464 9955