Laxatunga 179

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 129.900.000 kr.

Laxatunga 179
Tegund
Raðhús
Stærð
203,400001525879 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2016
Fermetraverð
638.643 kr.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: ENDARAÐHÚS Á EINNI HÆÐ – ÆÐISLEGT STÓRT ELDHÚS – 3 SVEFNHERBERGI – 1 BAÐHERBERGI – GESTASNYRTING – GÓLFHITI - FLÍSAR Á GÓLFUM – AUKIN LOFTHÆÐ - BÍLSKÚR ! Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. í síma 837.8889 hjá johanna@fstorg.is

Fjölskylduvænt, vel skipulagt og fallegt 203,6 FM endaraðhús á einni hæð með aukinni lofthæð byggt 2019 í góðu og rólegu hverfi í Leirvogstungu. Húsið skiptist í forstofu, stórt og fjölskylduvænt eldhús, stofur, 3 svefnherbergi og baðherbergi og gestasnyrtingu og innbyggðan bílskúr. Hiti í bílastæði fyrir framan bílskúr. Steyptur veggur meðfram lóðinni en að öðru leiti er garðurinn ófrágenginn. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. í síma 837.8889 hjá johanna@fstorg.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Lokað rými en innangengt í eldhús á vinstri hönd en gestasnyrtingu og þaðan inn í bílskúr á hægri hönd.

Eldhús: Mjög stórt með mikilli lofthæð. Hvít háglans U-laga innrétting með efri og neðri skápum og svartri granít borðplötu. Span helluborð og gufugleypir, AEG bakaraofn og stór vaskur. Ísskápur og frystiskápur passa inn í innréttinguna og geta fylgt. Rými fyrir mjög stórt eldhús/borðstofuborð. Innaf eldhúsi er geymslubúr með rennihurð.

Stofa/sjónvarpsstofa: Opin og björt með aukinni lofthæð og útgengi út í suðvestur garð.

Svefnherbergin – Hjónaherbergi er mjög rúmgott með skápum yfir heilan vegg. Barnaherbergin einnig rúmgóð án skápa. Öll herbergin með aukinni lofthæð.

Baðherbergi: Flísalagt hólf í gólf með upphengdu salerni, hvítri háglans innréttingu með vaski, flísalagðri sturtu og baðkari.

Þvottahús með borði, skolvaski og hillum.

Gestasnyrting: Inn af forstofu á vinstri hönd. Flísalagt hólf í gólf með upphengdu salerni og hvítri háglans innréttingu.

Gólfefni: Gólfhiti og flísar á öllum rýmum.

Bílskúr: Flísalagður með sömu flísum og allt húsið, rafdrifinn bílskúrshurðaropnari. Hiti í bílastæði fyrir framan bílskúr. Rafhleðslustöð í bílskúr.

Geymsla: 6 fm geymsla innaf bílskúr með lausum hillum. Flísar á gólfi.

Garður: Steyptur veggur meðfram lóðinni en að öðru leiti er garðurinn ófrágenginn.

Fjölskylduvænt raðhús sem er mjög vel staðsett í Leirvogstungu, snýr niður að Leirvogi. Garðurinn snýr í suð-vestur og er mjög skjólgóður. Stutt út í náttúruna og öll þjónusta í miðbæ Mosfellsbæjar í 3ja-5 mín. akstursfjarlægð. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. í síma 837.8889 hjá johanna@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma

í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.

Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir

og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.