Skagabraut 42

251 Garður

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Skagabraut 42
Tegund
Einbýlishús
Stærð
245,400001525879 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1957
Fermetraverð
325.591 kr.

Lýsing

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Fallegt 245,4 fm einbýlishús á tveim hæðum og sérstæðan bílskúr. Íbúðarrými er 202 fm og bílskúrinn er 43,4 fm. Einnig er ca 20 fm sólskáli sem telur ekki í heildarfermetratölu húsins. Lóðin sjálf er rúmgóð eða 1.500 fm og hefur verið velviðhaldið. Húsið hefur fengið ágætis viðhald á undanförnum árum og m.a. járn og pappi á þaki á húsi og bílskúr endurnýjað 2023 - Rennur við þak endurnýjað ásamt frárennslislögnum frá rennu í jörð - Rafmagnstafla á neðri hæð endurnýjuð ásamt því að rafmagn í bílskúr var uppfært - Borðplata í eldhúsi endurnýjuð - 2024 - Sturtuklefi á neðri endurnýjaður 2025 - Skipt var um gler á nokkrum stöðum í sólskála 2026.

Eignin býður upp á leigumöguleika því áður voru í húsinu tvær íbúðir og því hægt að skipta húsinu í tvær íbúðir (efri og neðri hæð) og innangengt á tveimur stöðum.

Íbúð á hæð er 106,5 fm (merkt 01-0101), íbúðarherbergi í risi er 95,5 fm (merkt 01-0201) og bílskúr er 43,4 fm (merkt 02-0101) samtals er eignin skráð 245,4 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.

SELJENDUR SKOÐA SKIPTI Á MINNI EIGN INNAN SVEITARFÉLAGSINS.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Neðri hæð:

Forstofa er með flísum á gólfi og upphengi.

Hol er með parketi á gólfi ásamt skáp undir stiga.

Stofan er tvöföld og er með harðparketi á gólfi og það er útgengt á teppalagðan sólpall með rennihurðum á rúmgóða verönd.

Eldhús er með flísum á gólfi ásamt viðarinnréttingu og harðparket er á borðstofu

Baðherbergi er með flísar á gólfi og filmu yfir eldri flísum á veggjum, sturtuklefi, wc, innrétting í kringum vask og gluggi.

Þvottahús er með flísum á gólfi, upphengi og þaðan er útgengt á malbikað bílaplan.

Geymsla/búr er með parket á gólfi og hillum.

Stigi á efri hæð er teppalagður.

Efri hæð:

Þegar komið er á efri hæð tekur við rúmgott parketlagt hol með skápum og útgengi á suðursvalir.

Herbergin eru 4 og eru öll frekar rúmgóð með parketi á gólfi og skápar í tveim herbergjum.

Baðherbergi er með flísar á gólfi og filmu yfir eldri flísum, handklæðaofn, wc, skápar undir og yfir vask, baðkar og gluggar

Geymsla í risi er rúmgóð.

Bílskúr er sérstæður og skjólveggur tengir aðalbyggingu við bílskúr, þar er steinn á gólfi og klætt yfir með plastflísum, rafmagn í hurð, heitt og kalt vatn, gluggar, ásamt geymslurými.