Borgarholtsbraut 33
200 Kópavogur
Ásett verð: 89.900.000 kr.

- Tegund
- Hæð
- Stærð
- 113,8 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1963
- Fermetraverð
- 789.982 kr.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 113,8 m2 efri sérhæð í tvíbýlishúsi við Borgarholtsbraut 33 á eftirsóttum stað á Kársnesi í Kópavogi. Eigninni fylgir bílskúrsréttur samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Svalir með fallegu útsýni í suðurátt og sameiginlegur bakgarður í suðurátt.
Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, hol, gang, baðherbergi og þvottahús.
Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Íbúðin er vel staðsett í vesturbæ Kópavogs. Grunnskóli, leikskóli og sundlaug eru í stuttu göngufæri og verslanir og ýmis þjónusta eru í næsta nágrenni.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlegan inngang og þaðan upp stiga á pall sem hefur verið notaður sem forstofa.
Hol er með parketi á gólfi
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi. Gengið er út á svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með U-laga innréttingu og borðkrók, flísar á gólfi. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, ofn, helluborð og vaskur. Einnig fylgir uppþvottavél sem er í innréttingu.
Gangur er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með flísum á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er lítið með fataskáp og flísum á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, með baðkari, salerni, handlaug og skáp. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er á hæðinni við hlið inngangs í íbúðina. Innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Eigninni fylgir bílskúrsréttur samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.
Helstu framkvæmdir samkvæmt seljanda: Sett var ný eldhúsinnrétting ásamt flísum i eldhús fyrir ca. 8 árum. Skipt var um allt gler í íbúðinni fyrir um 4 árum. Þak var endurnýjað fyrir um 20 árum síðan.
Verð 89.900.000 kr.