Dalhús 61

112 Reykjavík

Ásett verð: 156.900.000 kr.

Dalhús 61
Tegund
Raðhús
Stærð
211,6 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1989
Fermetraverð
741.493 kr.

Lýsing

Gunnar Valsson og Lind fasteignasala kynna: Glæsilegt 6 herbergja parhús á frábærum stað í Húsahverfi Grafarvogs. Staðsetning hússins er afar góð í lokaðri götu. Í götunni er grunnskóli, íþróttahús, sundlaug og íþróttasvæði Fjölnis.

Nánari lýsing: Neðri hæð:

Forstofa með fallegum flísum á gólfi með gólfhita. Gott skápapláss.

Gestasnyrting er inn af forstofu sem er með upphengdu klósetti. Flísalagt í hólf og gólf og með hita í gólfi.

Bílskúrinn er 27,7 fermetrar og er innangengt í hann úr forstofu, flísar á gólfi, skolvaskur og sjálfvirkur bílskúrshurðaopnari.

Gangur er flísalagður og með gólfhita.

Eldhús sem gengið er inn í frá gangi er með fallegum flísum á gólfi og með hita í gólfi, sérsmíðaðar innréttingar úr hnotu og hvítu glans, góð eyja, bakaraofn og span helluborð.

Búr er inn af eldhúsi með flísum á gólfi og með hillum á veggjum.

Borðstofan er opin að hluta við eldhúsið með fallegar sérsmíðaðar innréttingar úr hnotu og gleri, sem tilheyra borðstofunni, harðparket á gólfi.

Stofan er rúmgóð og er samliggjandi við borðstofu, harðparket á gólfi.

Garðskáli sem opið er inn í frá borðstofu er ca 12 fermetrar, með flísum og hita í gólfi. Þaðan er útgengi

á góðan sólpall með heitum potti. Garðurinn er rótgróinn og skjólgóður.

Hellulagt bílaplan með hita. Kaldur geymsluskúr á bílaplani

Efri hæð:

Stigi uppá efri hæð er steyptur og teppi í miðjunni. Stigahandriðið er vandað úr burstuðu stáli og með gleri.

Hjónaherbergið er með harðparketi á gólfi og innaf hjónaberbergi er gott fataherbergi með hillum. Útgengt er út á svalir frá hjónaherbergi.

Barnaherbergin eru 3 og öll með harðparketi á gólfi og skápur í þeim öllum.

Sjónvarpshol er rúmgott með harðparketi á gólfi.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með góðri sturtu walk-in sturtu, tvær handlaugar og hiti í gólfi, upphengt klósett.

Þvottahús er rúmgott og er það flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu og handklæðaofni.

Geymsla er fyrir framan þvottahús sem í dag er notað sem fataherbergi.

Mikil lofthæð er á efri hæðinni og er gott milliloft yfir hluta rýmisins sem í dag er notað sem geymsla.

Endurbætur:

Allt tréverk utanhúss málað sumarið 2025.

Allur múr málaður að utan sumarið 2026.

Húsið almennt með gott viðhald.

Allar nánari upplýsingar veita: Gunnar Valsson s.699-3702 - gunnar@fastlind.is