Árvað 1

110 Reykjavík

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Árvað 1
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
87,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2014
Fermetraverð
802.526 kr.

Lýsing

LAUS STRAX! - GLÆSILEG 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ Í LYFTUHÚSNÆÐI MEÐ SUÐVESTUR ÚTSÝNIS SVÖLUM Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ Í NORÐLINGAHOLTI.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands (HMS) er birt flatarmál eignarinnar 87,1 fm.

Um er að ræða 3ja herb. íbúð á 2. hæð í lyftuhúsnæði byggðu árið 2014 með suðvestur svölum.

Gengið er inn í rúmgóða forstofu og gang, beint inn af er alrými inn í stofuna sem skiptir íbúðinni upp, baðherbergið er til hægri við forstofuna. Opið eldhúsið er til vinstri, en þar við hliðina er stærra svefnherbergið. Stofan er rúmgóð í enda forstofugangsins. Minna svefnherbergið er hægra megin við stofuna. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð og sér geymsla íbúðarinnar er í kjallara hússins.

Forstofa/gangur: Fataskápur og parket á gólfi.

Stofa: Bjart og rúmgott rými með parketi á gólfi og opið í eldhúsið, útgengt á skjólgóðar suðvestur svalir.

Eldhús: Viðarinnrétting, gott skápapláss og borð-eyja út af. Uppþvottavél fylgir, parket á gólfi og opið í stofuna.

Svefnherbergin: Bæði rúmgóð með parketi á gólfum og góðum skápum.

Baðherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi (gert ráð fyrir þvottavélum), flísalagt, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi.

Geymsla: Skráð 8,1 fm. í kjallara, lausar hillur geta fylgt með sem eru nú til staðar.

Sameign: Glæsileg og vel um gengin sameign.

- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.

- Góð bílastæði eru fyrir framan húsið.

- Einstakt útsýni til Bláfjalla og yfir Heiðmörkina.

Virkilega glæsileg eign í barnvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og Heiðmörk með öllum sínum útivistarmöguleikum rétt við hendina.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf. GSM: 896-3038 e-mail: johann@hofdi.is